26.7.2009 | 08:39
Svefnpurka!!!
Kæra dagbók það er næsta víst að ekki var baun undir dýnum prinsessunnar í nótt því hún svaf vel og fast í 9 klukkutíma og leit út eins og að hafa verið "að drekka eitthvað annað en malt" þegar hún steig fram úr .
Eftir hrakfarir kærastans ákvað prinsessan að vera elskuleg og bauð sínum út að borða í hádeginu eftir læknisskoðunina. Prinsessann valdi veitingastað aðalega eftir útlitinu, nema hvað . Þar settist parið og byrjaði á að panta drykki og fór síðan að lesa matseðilinn og ekkert nema fiskur á seðlinum, úps ekki alveg fyrir prinsessuna en hins vegar er kærastinn orðinn þvílík fiskæta að það er ótrúlegt, ekki sami maður
. Í því kemur framleiðsludrengurinn klæddur sjóliðajakka með drykkina og hrökkbrauð og eitthvað til að smyrja ofan á. Prinsessan, af eðlislægri forvitni, spurði hvað væri í þessari "smyrju" jú rjómaostur og kavíar, "kræst". Þar sem prinsessan vildi ekki veikjast á staðnum borðaði hún hrökkbrauðið þurrt og pantaði sér salat eftir að hafa fullvissað sig um að ekkert fiskmeti væri í því
. Kærastinn fékk hins vegar þennan fína fiskrétt og vill ólmur fara á þennan stað aftur
.
Í gær hélt "djammið" áfram því þá hélt parið á veitingahús sem býður upp á "brunch" í hádeginu með jazz undirleik, það var frábært að sitja í góða veðrinu og borða mikið og gott og hlusta á frábæra tónlistamenn . Eftir mat kom kærastinn auga á garnabúð með flottasta garni "ever" , prinsessan keypti í nýja handavinnu en því miður engar smellur, hvernig endar þetta eiginlega
.
Bless kæra dagbók nú er bara að hafa það gott áfram því heilsan er öll að lagast og þrekið að aukast enda kærastinn rosalega duglegur eftir erfið og mikil veikindi .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.7.2009 | 09:48
Lánið leikur við kærustuparið!!
Kæra dagbók mikið varð nú prinsessan hrædd í gær já alveg bara skelfingu lostinn. Kærustuparið var að stíga inn í leigubíl á leið upp á sjúkrahús þegar að bílstjórinn steig út og skildi bílinn eftir í hlutlausum og ekki í handbremsu
. Að sjálfsögðu fór bílinn af stað, prinsessan var rétt búin að opna hurðina en kærastinn búinn að setja annan fótinn inn og stíga í hann og bíllinn á hraðferð, skipti engum togum að kærastinn missti jafnvægið og reyndi að koma fótunum fyrir sig en datt svo illa á pallinn á matsölustað á neðstu hæðinni
. Prinsessan var með það á hreinu að nú væri hann rifbeinsbrotinn og eitthvað meira slasaður, það var ekki á það bætandi, fallið leit mjög illa út. Bílstjórinn stóð eins og þvara og hvorki aðhafðist nokkuð né sagði. Það dreif að kokka og framleiðslufólk af báðum veitingastöðunum á neðstu hæðinni og þeir vissu alveg hvað þeir voru að gera, tékkuðu á helstu hættumerkjum og buðust til að hringja á sjúkrabíl
. Þarna lá kærastinn í götunni og reyndi að sannfæra viðstadda um að líklega væri bara allt í lagi og að hann væri hvort sem er á leið á sjúkrahúsið í skoðun. Þá var hann bara skoðaður betur og látinn gera ýmsar hundakunstir og þá fengum við fararleyfi og fórum beint upp á sjúkrahús það sem hann var allur skoðaður aftur og fékk plástur á hnéð, svona er kærasti prinsessunnar sterkur
. Hins vegar var prinsessunni svo brugðið að hún þagði alla leið á sjúkrahúsið en það tekur um 30 mínútur að aka þangað og það gerist nú ekki oft
. Að vísu hafði hún vit á að skrifa hjá sér nafn og númer leigubílsstjórans sem var alveg "úti að aka" ef ekki bara í Kakakstan, hann hefur vonandi drifið sig heim í háttinn og tekið frí það sem eftirlifði dags til að forða öðrum frá sér
.
Þegar við komum heim aftur tók hjálparliðið á móti okkur og vildi fullvissa sig um að allt var í lagi, ekkert nema umhyggjan .
Bless kæra dagbók og bestu kveðjur í golfið og útilegurnar svo ekki sé talað um á svalirnar og pallana
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
24.7.2009 | 07:44
Meiri endurheimtur?
Kæra dagbók nú fór prinsessan á bauninni bæjarferð í gær en kom heim smellulaus þó að smellukaup hafi verið grunnástæða ferðarinnar . Þar sem alltaf er hægt að skreyta bæjarferðir með ónauðsynjum þá ákvað prinsessan að kanna vöruúrvalið í "fínni" búðum Stokkhólms, merkjabúðum og svona "Sævar Karl" búðum. Þarna voru útsölur eins og annarsstaðar, prinsessunni til mikillar undrunar sá hún engin föt eða skó sem freistuðu hennar, kannski vegna þess að þetta var allt saman útsölugóss og prinsessur klæðast náttúrulega ekki í "last season" föt. Það sem prinsessan sá var hins vegar góður arftaki "galdratöskunnar" sem hefur fylgt henni stíft undanfarin ár sérstaklega á ferðalögum
. Arftakinn var taska frá "Miu Miu" sem hafði kostað 13250 krónur en var nú á 50% afslætti, sem sé á 6525 krónur en prinsessunni fannst peiningunum betur varið í annað, hvað svo sem þetta "annað" er
. Næst hélt prinsessan á kaffihús og fékk sér kaffi og eina sæta og ákvað að hringja í kærastann, smá eftirlit, athuga hvort hann hefði tekið lyfin og borðað eitthvað
. Prinsessan hefur náttúrulega beðið, hálf kvíðin, eftir persónuleikabreytingum sem maður hefur heyrt af hjá þeim sem farið hafa gegnum merggjöf og líffætagjöf. Við fréttum af einum sem fór að sækja svo í að fá sér eitt rauðvínsglas að kvöldi og síðar kom í ljós að gjafinn var vínplantekrueigandi frá Ítalíu og fleiri slíkar sögur höfum við lesið og heyrt af
. Þar sem Eyjólfur fékk stofnfrumurnar frá Þjóðverja mátti búast við bjórdrykkju, mikilli skipulagningu fram í tímann (hefur reyndar verið til staðar) og það sem hefur valdir prinsessunni mestum kvíða en það er aðhaldssemi á fé
. Þar sem kærastinn hefur alla tíð verið afar rausnarlegur á það sem væri fyrir prinsessuna, föt, skartgripi og skemmtun, þá hefur örlað á smá óöryggi hjá prinsessunni þegar kærustuparið hefur farið í verslanir. Ekkert hefur borið á aðhaldsemi þvert á móti, prinsessan þarf aðeins að stíga á bremsunrnar. Nema hvað þegar prinsessan var að ræða við kærastann í símann á kaffihúsinu nefndi hún svona í framhjáhlaupi töskuna flottu og hagkvæmu og sleppti ekki verðinu. Kærastinn átti ekki orð yfir aðhaldseminni
og fór fram á að prinsessan snéri við og festi kaup á þessari fínu tösku. Einhverjar vöflur komu á prinsessuna, reyndar gerðist hið ótrúlega, hún átti ekki orð en stundi "ég nenni ekki að fara til baka, ég bara geymi þetta"
.
Eftir að prinsessan skakklappaðist heim dró hún kærastann út á smá göngu og á "café" þar settist parið niður að svala þorstann og taskann góða barst aftur í tal, kærastinn enn hneykslaður á aðhaldssemi prinsessunnar og hún að afsaka sig og sagðist bara ekki geta hugsað sér að eyða svona miklu í eina tösku það væri svo margt annað hægt að gera við peningana, "hva þú ert jafn fátæk fyrir sexþúsund kall" sem sé kærastinn hélt allan tímann að prinsessan væri að tala um íslenskar krónur sem hún hélt að væru löngu úreltar eftir þriggja mánaðar dvöl með sænskar krónur
.
Nú er bara að skella sér á sjúkrahúsið því Eyjólfur er að fara í blóðprufu og svo á kaffihús á eftir. Hér rigndi eins og hellt væri úr föru í nótt en nu er komið fínt veður, það má sko rigna allar nætur fyrir mér og svo vil ég útivistarveður á daginn og er nokkur ástæða til að neita prinsessu .
Bless kæra dagbók og gaman að fá allar þessar góðu kveðjur að heiman og áfram með góða veðrið heima!! .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
23.7.2009 | 08:41
Matur er mannsins megin!
Kæra dagbók þá hef ég sett nokkrar myndir inn á bloggið sem teknar voru í byrjun júlí þegar hér voru gestir .
Nú er lagt allt kapp á að næra kærastann og koma á hann holdum, endurheimta hann aftur og það gengur bara nokkuð vel. Prinsessan eldar og fer út að borða með kærastann því það eru fyrirmæli frá læknunum að hann eigi að borða og borða og líka að fá sér einn og einn bjór en það hafa ekki komið nein fyrirmæli um holdafar prinsessunnar þannig að hún tekur fullan þátt í öllu þessu áti þó hún sleppi bjórnum
. Við verslum í "Stóra-kuffulaginu" og þar er sko úrvalið í lagi og jafnvel hægt að kaupa matinn eldaðann en þar sem úrvalið af kjöti og fiski (já fiski veiddum í Norður-Atlantshafi) er svo mikið að við freistumst alltaf af einhverju sem er svo eldað heima, líka í hádeginu
. Hins vegar eigum við það líka til að fara út að borða, þá sjáum við líka eitthvað annað fólk. Oftast er farið í hádeginu en um daginn fórum við að kvöldi til hér út á næsta horn en þar er grískur veitingastaður sem við gerðum ekki háar væntingar til
. Við höfum að vísu séð lægra verð á matsölustöðum en samt var þetta ódýrt en gæðin voru sko ekki í samræmi við verð, nei miklu betra
. Prinsessan pantaði sér entrecote steik og mátti velja hvernig eldaða kartöflu hún vildi með, alveg hæfir það minni. Kærastinn tók hins vegar áhættu því hann vildi endilega fisk og þar sem við erum orðin svo "góð" í sænsku vorum við bara með matseðil á sænsku. "Havgåsfile" skildi það vera, sænskuséníð hélt í fyrstu að þetta væri gæs alin upp í einhverjum garði, sbr hav/garður en sem betur fer var árætt að spurja þjónustustúlkuna, sem var austurlensk/kínversk sem var svolítið skondið á grískum veitingastað
. Þessi "garðargæs" reyndist hinn besti fiskur með mjög góðu meðlæti og svo fylgdi súkkulaðimús í tveimur lítum í eftirrétt, prinsessan fékk tvöfaldan expresso sem var mjög góður við vorum alsæl með þessa máltíð og ekki skemmir að vera bara í 3-5 mínútur á leiðinni
. Með tveimur rauðvísglösum var verðið mjög sanngjarnt og mun lægra en heima
.
Bless kæra dagbók við höldum bara áfram að vinna að því að eindurheimta Eyjólfu og biðjum einhverna að vera búin að henda vigtinni þegar við komum heim .
Bloggar | Breytt s.d. kl. 08:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.7.2009 | 09:03
Bústaður okkar!


Kæra dagbók eins og þú veist þá finnum við okkur mjög "heima" hér í íbúðinni í Stokkhólmi og okkur líður vel hér. Ekki skemmir það fyrir að íbúðin er á annari hæð, eins og var á Hjallabrautinni, að vísu er eins og við förum alltaf inn í gegnum kjallarann og hér er líka lyfta svona eins og framin voru morð í í frönskum bíómyndum frá 5. áratugnum
, opin lyfta með rennihurð og rimlahurð, tvær hurðar og maður sér út alla leiðina. Prinsessan notar að sjálfsögðu aldrei þessa lyftu
en það gera hugaðir kærastar alltaf. Gunnar er nálægur því á horninu er pizzastaður sem heitir "Gunnars pizza", þrír Gunnarar voru í stigaganginum á Hjallabrautinni
. Reyndar er Jói fluttur af efstu hæðinni og býr nú á neðstu hæð í næstu blokk
og lætur sér ekki nægja að slá grasið hjá sér eftir vinnu heldur slær hann hjá hinum stigagöngunum líka. Hann fer á "Blöndós" um helgar og grillar reglulega í góða veðrinu og er oftar en ekki með gesti, við birtum mynd af honum hér á blogginu, skollóttur með sólgleraugu, jú "sænskur" Jói, við höfum nú reyndar ekki farið og fengið lánaða hjá þeim hjónum mjólk eða rjóma,
ennþá. Við höfum líka húsvörð hér, náunga sem dagaði upp um 1970, hjólar um götur á "möve" hjóli, ber á ofan með skegg niður á nafla, heldur ótrúlega hreinu og þvottahúsið er til fyrirmyndar, snyrtipinnar hinir mestu væru hæst ánægir
.
Bless kæra dagbók, hér er fínt veður þó það sé gott á Íslandi, alltaf 18-25°C sól og skýjað til skiptis og svo hafa komið einstaka skúrir en við höldum samt að Svíarnir séu ekki ánægðir með sumarveðrið.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.7.2009 | 14:17
Betra seint en ekki!!
Kæra dagbók þá er mín bara svolítð seint á ferðinni, einhverjir prinsessustælar í minni .
Við þurftum að vakna fyrir allar aldir í morgun eða fyrir klukkan 8:00 að staðartíma, við vöknum vanalega upp úr sjö af sjálfsdáðun, í morgun var þetta eitthvað erfitt . Við gleyptum í okkur morgunmatinn eftir að hafa sturtað okkur á methraða, pöntuðum leigubíl og rétt náðum tímalega upp á sjúkrahús
. Eyjólfur var í eftirliti í morgun eins og hann er reyndar tvisvar í viku hverri. Við hittum sjúkraþjálfarann sem var bara mjög ánægður með Eyjólf. Ég reyni af fremsta megni að þræla honum út daglega, að ganga eða hjóla nema hvort tveggja sé. Reyndar er hann rosalega duglegur og vinnur stöðugt að því að styrkja sig á allan hátt og koma sér í betra form
. Sem dæmi þá upp á stóð hann í dag að fara að versla og ég hlýddi eins og ég geri alltaf
. Þetta gékk svo vel, byrjuðum á kaffi, kók og súkkulaðiköku, sem var mjög gott! Síðan var ráðist á búðirnar, fyrst var það vetrarúlpa á Eyjólf á útsölu, þrír toppar og vesti á prinsessuna, ekki á útsölu, gallabuxur á herrann, á útsölu og kaffibrúsi fyrir heimilið, ekki á útsölu
. Kærustuparið var svo ánægt með sig að það hélt á matsölustað og snæddi hádegisverð utandyra og horfði á mannlífið á meðan, æðislegt. Svo var drifið sig heim til að blogga, ekki sleppa því og svo náttúrulega þarf að þvo
.
Bless kæra dagbók og mikið var gott að ég lét þig vita af pallinum við Súfistann því það hefur bara verið uppselt síðan.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.7.2009 | 07:54
Meira túristað!
Kæra dagbók hér opnuðust gáttir himins í nótt og það rigndi svo rosalega að við vöknuðum við lætin en nú hefur stytt upp og við erum á útleið. Í gær var yndislegt veður til að skoða borgina, lítil sól en hlýtt. Við fengum okkur hjól og hjóluðum um 1000 metra eða heilan kílómetra, það finnst mér mjög gott og miklar framfarir
reyndar allt svona frekar niður á við, en... Við lögðum hjólunum ekki langt frá sjó og komum auga á bátana sem fara með "túristana" í ferðir. Þar með var það ákveðið við skyldum í ferð, alltaf svo skipulögð kærustuparið. Við völdum svona "On and off" ferð og miðinn gildir í sólarhring. Við kláruðum hringinn, það tók nærri klukkutíma. Þar sem við erum svo hagsýn
þá ætlum við að nýta miðann á eftir og fara að skoða Vasaskipið, báturinn stoppar við það. Eyjólfur verður að skoða þetta merkilega fyrirbæri já fyrirbæri því þetta lítur nú ekki út fyrir að vera gott sjóskip
skrýtið. Nú er bara að vona að ekki hafi fréttst af ákvörðun okkar svo fólk fari ekki að flykkjast á safnið til að sjá okkur því Eyjólfur á ekki að vera í mannþröng og það hentar nú svona prinsessu líka mjög vel að þurfa ekki að skásjóta sér innan um "túrista"
.
Bless kæra dagbók, við fréttum af nýjum palli við við Súfistann í Hafnarfirði svo nú er gott að drekka kaffið/kókið þar í góða veðrinu.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
19.7.2009 | 09:17
Æfa, æfa, vinna, vinna!
Kæra dagbók í gær fór kærustuparið í piknikk á landareigninni í æðislegu veðri og með gott nesti en í morgun fór prinsessan í könnunarleiðangur og fór víðar um . Hérarinir voru að gera sig nokkuð breiða og voru eitthvað að reyna að keppa við prinsessuna en hraðinn á prinsessunni var þvílíkur að hérarnir þorðu ekki annað en að þykjast vera að hlaupa í aðra átt
. Óvanalega margir voru á ferðinni og eflaust einhver áskorun í gangi hjá þeim, hver þorir að keppa við prinsessuna, reyndar er sunnudagur og heldur færra mannfólk á ferðinni, veit ekki hvort það hefur skipt máli
.
Í gærkvöldi eldaði prinsessan kjúklingabringur af kornöldum kjúklingi, rosalega góður kjúklingur og dýrari en venjulegur. Það læddist nú að kærustuparinu hvort allir kjúklingar á Íslandi væru kornaldir þar sem bringurnar minntu ótrúlega á þær íslensku með skinni . Ljótt að vera að hugleiða þetta þegar maður er nýbúinn að dást af hérunum, er einhver munur, og eru hérar ekki étnir líka, æ,æ
.
Við höfum ákveðið að gefa veðurspánni langt nef og reyna ekki að skipuleggja neitt samhvæmt henni. Það er alltaf verið að spá rigningu en hún virðist alltaf fara sunnan við okkur, ekki það að við söknum hennar, langt því frá, bara að hætta að gera ráð fyrir henni og gera bara það sem okkur langar til með tilliti til aðstæðna en allt gengur út á að ná upp meiri styrk. Rigningin í suður Svíþjóð hefur verið gríðarleg og önnur eins úrkoma ekki komið í manna minnum og alltaf verið að slá ný met, allt á floti. Sem betur fer höfum við sloppið mjög vel, einstaka skúrir suma daga en mest sól og sæla .
Bless kæra dagbók og nú er bara að halda áfram með uppbygginguna og nú hafa fleiri myndir bæst við!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 09:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
18.7.2009 | 08:21
Frábær dagur í gær!!
Kæra dagbók við kærustuparið höfðum það sérdeilis flott í gær . Við tókum leigubíl niður að höfninni þar sem skerjagarðsbátarnir láta úr höfn. þarna við höfnina er "Grand Hotel" en þar gisti Britney Spears í síðustu viku en þetta er samt eitt flottasta hótelið hér í Stokkhólmi
. Við drifum okkur inn enda prinsessa á ferð og þar fengum við okkur hádegismat, sesarsalat með grilluðum kjúkling og var það lítið dýrara en á veitingahúsunum í okkar götu en virkilega þess virði þjónustan var betri á allan hátt, opnaðar dyrnar á leigubílnum prinsessunni vísað inn þetta hæfðir svona prinsessu mjög vel
.
Á eftir fengum við okkur smá göngutúr meðfram sjónum og kíktum á bátana og settumst á einn bryggjubarinn þar sem prinsessan fékk hvítvínsglas og kærastinn kók í gleri og fullt af klaka, þarna var yndislegt að sitja í góða veðrinu, undir sólhlíf og horfa á lífið . Tókum leigubíl heim og hvíldum okkur vel hér heima eftir frábæran dag
.
Núna er prinsessan að þvo, þessar prinsessur eru svo snyrtilegar, prinsessan skellti veskinu sínu, hliðartösku, í þvottavélina áðan. Þessi fína Guess-taska var farin að láta virkilega á sjá með hinum ýmsu blettum og ekki lengur fallega beinhvít heldur skjöldótt og ekki prinsessu til prýði. Nema hvað taskan er orðin svo fín og hæfir prinsessunni í næstu bæjarferð. Nú er bara að halda áfram að þvo og síðan að versla. Já kærustuparið ætlar að skella sér í piknikk á landareign prinsessunnar um hádegið og liggja þar í leti með sólhlíf/regnhlíf og slappa vel af í sólinni og hitanum, gott að búa að því að eiga þennan fína garð hinu megin við götuna .
Eitt furðulegt með Svíana ; í Hagaparken en veitingastaður sem við höfðum hug á að heiðra með nærveru okkar en nei, lokað frá 14. júlí til 1. ágúst vegna sumarleyfa, "common" hvenær má búast við mestu viðskiptunum í útivistargarði. Þessu stefni ég á að breyta. Reyndar eru fleiri staðir þarna og hótel við innganginn, hótelið er opið en við eigum eftir að kanna hina staðina
.
Bless kæra dagbók og bestu kveðjur heim í góða veðrið og verið dugleg að nýta pallana og svalirnar meðan hægt er!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.7.2009 | 08:24
Blogg-hvarfið!
Kæra dagbók hér hamaðist prinsessan á bauninni við að blogga svo flott blogg í gær og síðan las hún það á síðunni en síðan hefur ekkert til þess spurst bloggið frá í gær er gleymt en hér kemur nýtt.
Fyrst eru það góðu fréttirnrar fyrir ykkur á Íslandi, heimför okkar hefur verið frestað um tvær vikur vegna þess hve Eyjólfur hefur verið veikur í "lækningunni". Hann er nú á hægum góðum batavegi og allt í sambandið blóðið er gott og allar hafnanir eru á undanhaldi svo núna er það uppbyggingin sem gildir. Þá er nú gott fyrir Eyjólf að geta gengið að landareign kærustunnar vísri, því þar er svo gott að ganga um og fullt af rónabekkjum til að hvíla sig á .
Í morgun fór prinsessan í góða eftirlitsferð á landareigninni en nú hefur læðst að henni sá grunur að eitthvað sé nú tvíbent með vatnið/sjóinn á landareigninni. Henni hefur nefnilega borist til eyrna fréttir að landnámi/sjónámi ónefnds dönskukennara, dönskukennarinn hefur víst yfirtekið Kópavog . Spurning hvort þessi ónefndi dönskukennari verði bara ekki að gera sér ferð til Svíþjóðar og nema Brunnsvíkina, vatnið/sjórinn er of kaldur fyrir svona prinsessu á bauninni
. Hvað gera nú aðrir dönskukennarar og aðrir kennarar á hlaupum, er það rétt að þeir hafi yfirtekið Heiðmörkina og hleypi ekki nema útvöldum þar inn. Prinsessan sér fram á gífurlega landaukningu Hafnarfjarðar þegar að heim kemur í byrjun september
, kannski að Victoría leiti ásjár, þá er bara spurningin hvort hún fái leigt í Hagaparken eða í Hellisgerði, er ekki kaffihúsið þar enn?
Kærustuparið ætlar að skella sér út að borða í hádeginu að hætti Svía en hér er hægt að snæða fínan hádegisverð með gosi eða hvítvíni fyrir 70-100 krónur sænskar eða innan við 1200-1650 íslenskar krónur .
Kæra dagbók þá er vonandi að þetta haldist inni svo dönskukennarar og aðrir getið íhugað áhyggjur prinsessunnar.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar