Bloggfærslur mánaðarins, apríl 2011

Gleðilegt sumar!

Góðan daginn kæra dagbók Wink hér koma smá, örlitlar fréttir af prinsessunni en lítið hefur heyrst frá henni að undanförnu. Ástæðan er einfaldlega fingraleti og meiri svona handleggja dugnaður FootinMouth.

Prinsessan hefur kærastann að mestu heima hjá sér þessa dagana og er hann  að jafna sig eftir lugnabólgu og veikindi undanfarna mánuði og síðan er það áframhaldandi barátta við hvítblæðið.

Jón Leifs alias ormur er nokk til friðs þessa dagana og virðist mjög ánægður með það að hafa ömmu og afa heima flesta daga og svo skokkar hann í göngutúra með parinu Smile.

Prinsessan hélt til höfuðborgarinnar á þriðjudaginn og varð sér úti um Skólastjórasúpu (ekki það að sú staða sé markmiðið) og kaffi og súkkulaði í eftirrétt. Þar hitti prinsessan eiturhressar "bókhaldsdömur" sem þó minntust hvorki á debet né kredit. Þessar dömur eru ótrúlega jákvæðar og hressar þrátt fyrir að hafa verið atvinnulausar um lengri tíma og reynt af fremsta megni að lifa á bótum þær hafa verið duglegar að sækja hin ýmsu námsskeið og jafnvel að leika í kvikmyndum eða sjónvarpsþáttum Tounge. Alla vega hafði prinsessan mjög gott af því að hitta þessar skvísur og á áætlun er að neyða þær hingað út á landsbyggðina og hver veit nema boðið verði upp á "atvinnubóta" súpu eða bara kaffi Cool.

Nú er prinsessan hins vegar að fá flotta dömu í kaffi, þessi dama gerir ekkert annað en að safna barnabörnum þessa dagana Shocking.

Klukkan fimm ætlar svo prinsessan ásamt frumburðinum til höfuðborgarinnar og þar ætla þau að fylgjst með einkadótturinni að taka þátt í módelfitness en prinsessan vakanði fyrir allar aldir í morgun og málaði dótturina dökk brúna á allan kroppinn Sideways.

Bless kæra dagbók og bestu kveðjur frá kærustuparinu sem reynir að fara í þrjá örstutta göngutúra á dag (á milli hryðja) og vinnur hörðum höndum að uppbyggingu sem gengur bara vel Kissing


Áfram fingraleti!

Góðan daginn kæra dagbók Wink enn er prinsessan illa haldin af fingraleti þetta nær meira að segja til prjónanna, ekki gott mál GetLost.

Prinsessan hefur kærastann heima hjá sér núna og fengu þau mjög góða gesti í hádegiskaffi en þá var kærustuparið búið að mæta á kjörstað og gera sínum atkvæðum góð skil. Fámennt og nokkuð góðmennt var á kjörstað upp úr klukkan 09:00 á "Greenwitch time" en eitthvað átti konan sem kaus næst á undan kærustuparinu erfitt. Prinsessan er ekki alveg með á hreinu hvort hún kaus rétt eða rangt, enda bannað að nota sömu orð á kjörstað í dag og bönnuð eru í "Frúnni í Hamborg" svo ekki þorði prinsessan að spyrja, vildi ekki fá lögreglufylgd út af kjörstað FootinMouth. Alla vega þessi kvenmaður tók sig til og hnerraði þrisvar með miklum tilþrifum þegar hún hugðist stinga atkvæðaseðlinum ofan í kjörkassann, prinsessunni varð á orði (talandi út frá eigin reynsluheimi) "þú ert með ofnæmi fyrir kjörseðlinum". Kvenmaðurinn dreif sig í að troða seðlinum í rifuna og tók á rás út, prinsessan var að hugsa um að hlaupa á eftir henni og spurja hvað hún hefði kosið, þar sem líklegasta skýringin á hnerrunum er að hún hafi kosið rangt Frown.

Bless kæra dagbók og bestu kveðjur frá kærustuparinu sem hefur það gott saman og ætlar að fá gott að borða í kvöld og meira að segja rauðvín með og jafnvel að ná að vaka eitthvað yfir kosningarsjónvarpinu Kissing.


"Holliday"

Góðan daginn kæra dagbók Wink þar sem að prinsessan á bauninni er illa haldin af fingraleti þessa dagana þá ætlar hún voða lítið að tala við þig í dag Blush.

Prinsessan hefur verið nokkuð til friðs undanfarna daga og ætlar að vera það fram yfir helgi. Prinsessan er svo heppin að kærastinn er hitalaus og fær því að vera heima um helgina og líka að gista Smile. Hann kom heim seinnipartinn í gær með fullan poka af lyfjum og á morgnanna mætir hjúkrunarfræðingur og gefur kærastanum lyf í æð en að öðru er hann nokkuð laus við en þó ekki til stórræðanna. Hins vegar hefur kærustuparinu verið boðið í mat hjá góðum vinum í kvöld og ætla þau að þekkjast boðið í þeirri von að börnin verði heima að passa Jón, ekki er hægt að skilja hann einan eftir GetLost.

Bless kæra dagbók og bestu kveðjur frá kærustuparinu Kissing.

 


Höfundur

Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Vigfúsdóttir
Kennslulkona í leyfi frá störfum. Með mikla hreyfi þörf og ferðafíkill en sækist mest eftir hlýju loftslagi.

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • Kærustuparið!
  • Taka tvö af Kærustuparinu!
  • Prinsessan!
  • Jón Leifs!
  • myndir student 055

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (23.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 790

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband