Dugnaður!!

Kæra dagbók heldur þú ekki að prinsessan hafi ekki bara skellt sér í ræktina í morgun og er sko öllu hressari á eftir enda alltaf hressandi að fara í Hress og hitta hressurnar í kaffi Wink.

Æfingarnar gengu rosalega vel, fyrst var það stígvél á prinsessuhraða í 30 mínútur og síðan göngubrettið þar sem prinsessan tók fimm spretti og gékk á milli, nú verða sko sænsku sniglarnir að fara að vara sig Shocking. Prinsessan svitnaði og svitnaði við alla þessa áreinslu og var sko ánægð með sig en það var að sjálfsögðu eyðilagt fyrir henni Angry. Já já komu ekki tvær hressur upp í kaffi og sögðu að loftræstingin væri engin og loftið svo þungt að þær hefðu sko svitnað við það að horfa á tækin, "common" prinsessan er með það á hreinu að þær hafi bara verið svo syfjaðar að þær tóku ekki eftir því hvað þær tóku vel á og hömuðust W00t.

Í dag er bara frí hjá kærustuparinu, engar heilbrigðisheimsóknir svo nú er bara að bretta upp ermar og klára fataskápana að hurðum, já já prinsessan er að setja upp fataskápa, alveg ein Cool bara smá hjálp, frá kraftajötninum krónprinsi, þegar á aflsmunum þarf að halda. Hurðarnar eru að vísu ekki komnar í hús því þær eru væntanlega til landsins fljótlega en þetta fljótlega hjá IKEA er ekki sama og fljótlega hjá prinsessunni FootinMouth.

Bess kæra dagbók og áfram með hlýindin og engar norðan áttir takk Kissing.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Styð þig sannarlega með ósk um sunnanáttir. Það er gott að fá að fylgjast svona með hvernig gengur. Það eru sem sagt "spennandi tímar" hjá ykkur inn á milli og dramatískar spítalaferðir. Ekki við öðru að búast hjá kóngafólki.

Bestu kveðjur.

Guðríður (IP-tala skráð) 10.11.2009 kl. 16:55

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Vigfúsdóttir
Kennslulkona í leyfi frá störfum. Með mikla hreyfi þörf og ferðafíkill en sækist mest eftir hlýju loftslagi.

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • Kærustuparið!
  • Taka tvö af Kærustuparinu!
  • Prinsessan!
  • Jón Leifs!
  • myndir student 055

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband