Bloggfærslur mánaðarins, október 2009

Jæja!!

Kæra dagbók Þá er komið að þriðju tilraun prinsessunnar í dag að láta þig frá fréttir Smile. Það var gífurlegur lúksus á prinsessunni í gær Cool. Hún fékk símtal frá góðri vinkonu sem bauð í mat sem eiginmaður vinkonunnar hafði eldað. Vinkonan er nefnilega svolítil prinsessa líka að vísu ekki af sömu ástæðum og prinsessan á bauninni. Heldur af því að hún er svo mikil dama og svo á hún eiginmann sem er mjög duglegur við að dekra hana og síðast en ekki síst þá á hún tvær ungar íði fagrar prinsessur með yndisleg bros Joyful. Þessi prinsessu vinkona hringdi sem sé og bauð kærustuparinu í mat og maturinn var rosalega góður, umhverfið yndislegt og félagsskapurinn frábær. Þar sem prinsessan er með svo mikið keppnisskap þá hefur hún velt því fyrir sér í allan dag hvernig hún geti toppað matinn, gestgjafana eða umhverfið og niðurstaðan er fengin. Prinsessan ætlar ekki að reyna við neitt af þessari upptalningu hún ætlar bara að bjóða vinkonunni og eignmanni hennar í mat seinna og er þá um leið búin að toppa matarboðið í gær með því að fá betri og skemmtilegri gesti LoL. Svona er nú prinsessan á bauninni alltaf klár!

Á ýmsu hefur gengið hjá kærustuparinu að undanförnu, fyrir utan tiltektir og yfirhalningu heima fyrir, sem hefur reyndar gengið mjög hægt, þá  hefur kærastinn verið svo illa haldinn af hálsríg að hann hallar ekki undir flatt heldur notar bara betra augað.

Bless kæra dagbók og bestu kveðjur frá söddu kærustupari Kissing.


Vanræksla á hæsta stigi!

Kæra dagbók nú hefur þú verið vanrækt alltof lengi og átt örugglega voða erfitt en nú ætlar prinsessan að gera bragabót á og setjast aftur við að segja þér fréttir af sér og nánasta umhverfi Smile.

Á ýmsu hefur gengið síðan síðast. Það fyrsta er að prinsessan var svo óánægð með fataskápinn, sem reyndar var hurðarlaust gargan. Gofbuxurnar hlupu í honum í sumar og áður en í óefni væri komið ákvað prinsessan að versla nýjan skáp til að forða öðrum prinsessu fatnaði frá sömu örlögum Blush. Prinsessan hentist stað úr stað og leitaði tilboða í fataskáp fyrir sig og kærastann, mörg tilboð fengust en þau voru öll eitthvað svo 2007 að prinsessan dreif sig í IKEA og leitaði lausna. Þar fékk prinsessan skáp(a) sem passa ekki alveg í bilið en þar sem prinsessan er mjög útsjónasöm kona þá verður 19 sentimetra bilið líka nýtt en kostnaðurinn verður nær einn þriðji af lægsta tilboði svo prinsessan er sátt og kemst oft út að borða fyrir sparnaðinn Wink. Svo undarlega vill til að fataskápurinn er enn hurða- og skúffu laus, þar sem að enn eru fjórar vikur í þá sendingu, "aldrei" gerst áður hjá IKEA.

Meðan prinsessan og kærastinn dvöldi erlendir var skipt um parket á neðri hæð hússins þeirra en svo illa vildi til í fyrra að bæði rör og ofn sprungu í  í fyrra. Parketskiptin voru svolítið söguleg í ljósi ástands fyrirtækja í landinu en höfðust að lokum rétt áður en kærustuparið mætti á frón. Síðan var drifið í málingavinnu, laga skemmdir eftir lekann og síðan miklu fleiri misfellur lagaðar og nú er svo komið að húsið hæfir prinsessunni og kærastanum Grin. Í málingarvinnuna var fenginn frændi prinsessunnar, hann hýtur þá að vera prins, og félagar hans. Prinsessan naut sín sko með fullt af karlmönnum í húsinu, alveg eins og uppeldisárin, ekkert nema strákar eitthvað að bardúsa Tounge. Prinsessan er mjög ánægð með alla málingar vinnunna og er með sir bróður í fullri vinnu við að bora göt til að hengja upp hillur, ljós og fleiri muni Sideways.

Bless kæra dagbók og nú færðu oftar fréttir af mér því það er svo mikið að gerast og kærastinn hressist smá saman en afar hægt sem er nú kannski ekki alveg í takti við æðubunugang prinsessunnar en hún hefur tekið upp þann sið að taka alltaf tvær til þrjár vikur í viðmiðunartölurnar.  Þannig að miði hún þrjár vikur aftur í tímann þá gengur hann mun hraðar í dag þó hraðinn hafi verið töluvert meiri á árum áður Kissing.


Höfundur

Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Vigfúsdóttir
Kennslulkona í leyfi frá störfum. Með mikla hreyfi þörf og ferðafíkill en sækist mest eftir hlýju loftslagi.

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • Kærustuparið!
  • Taka tvö af Kærustuparinu!
  • Prinsessan!
  • Jón Leifs!
  • myndir student 055

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband