Bloggfærslur mánaðarins, nóvember 2009

Selskapsdama óskast!

Kæra dagbók ýmislegt hefur nú drifið á daga prinsessunnar síðan síðast og andleysið verið allsráðandi Woundering.

Kærastinn er betri til heilsunnar og blóðprufurnar alltaf að "bessna" svo prinsessan er alsæl með það. Hins vegar var prinsessu-móðirin að detta og mjaðmagrindarbrjóta sig enn einu sinni Frown. Hún er búin að fara í aðgerð sem gekk eins vel og hægt var þegar beinin eru orðin eins léleg og þau eru. Konan sem eitt sinn var 168 sm er orðin pínulítil því hún hefur fengið svo mörg samföll í hryggnum fyrir utan að maðmagrindarbrotna illa þrisvar sinnum. Prinsessunni finnst þó verst að komast ekki í heimsókn til mömmu sinnar en svona prinsessur þola ekki kuldan sem er nú í veðurkortunum Pinch. Reyndar er prinsessan innilokuð flesta dagaog reynir af fremsta megi að vera myndarleg húsmóðir en það gleymdist víst að setja í hana húsmóðursgenið þegar hún var innréttuð á sínum tíma Blush.

Prinsessan á nú frátekið hús á Spáni fyrir sig eftir áramót til að flýja kuldan, svolítið erfitt að vera alltaf í hættu vegna veðurfarsins. Það sem prinsessan hefur mestar áhyggjur af, fyrir utan að kærastinn og börninn geti bjargað sér án hennar, er að vera ein. Þess vegna auglýsir prinsessan eftir selskapsdömu(m) til skemmtunar og til að fyllsta siðgæðis sé gætt í útlandinu FootinMouth.

Prinsessan verður í fínu hús og með bíl til umráða auk þess sem golfsettið á að vera með í för Smile.

Bless kæra dagbók þar til andinn kemur næst Kissing.

 


Dugnaður!!

Kæra dagbók heldur þú ekki að prinsessan hafi ekki bara skellt sér í ræktina í morgun og er sko öllu hressari á eftir enda alltaf hressandi að fara í Hress og hitta hressurnar í kaffi Wink.

Æfingarnar gengu rosalega vel, fyrst var það stígvél á prinsessuhraða í 30 mínútur og síðan göngubrettið þar sem prinsessan tók fimm spretti og gékk á milli, nú verða sko sænsku sniglarnir að fara að vara sig Shocking. Prinsessan svitnaði og svitnaði við alla þessa áreinslu og var sko ánægð með sig en það var að sjálfsögðu eyðilagt fyrir henni Angry. Já já komu ekki tvær hressur upp í kaffi og sögðu að loftræstingin væri engin og loftið svo þungt að þær hefðu sko svitnað við það að horfa á tækin, "common" prinsessan er með það á hreinu að þær hafi bara verið svo syfjaðar að þær tóku ekki eftir því hvað þær tóku vel á og hömuðust W00t.

Í dag er bara frí hjá kærustuparinu, engar heilbrigðisheimsóknir svo nú er bara að bretta upp ermar og klára fataskápana að hurðum, já já prinsessan er að setja upp fataskápa, alveg ein Cool bara smá hjálp, frá kraftajötninum krónprinsi, þegar á aflsmunum þarf að halda. Hurðarnar eru að vísu ekki komnar í hús því þær eru væntanlega til landsins fljótlega en þetta fljótlega hjá IKEA er ekki sama og fljótlega hjá prinsessunni FootinMouth.

Bess kæra dagbók og áfram með hlýindin og engar norðan áttir takk Kissing.

 


Nýjar fréttir!!!

Kæra dagbók þá heyrist loks frá prinsessunni á bauninni Wink. Síðasta vika var svolítið erfið fyrir prinsessuna, fyrst fór hún í göngutúr í glaða sólskini og 5°C hita á sunnudeginum og fékk mjög slæmt ofnæmiskast eftir einhverja 30 metra Sick. Mamma prinsessunnar hefur líka verið veik og illa haldin af verkjum en of kalt fyrir prinsessuna til að vera á miklu útstáelsi og þá um leið heimsóknum til mömmu. Síðan komu erfiðar fréttir eftir blóðprufuna hjá kærastanum á þriðjudaginn. Kærastinn kom það illa út úr blóðprufunum að læknirinn hélt að sjúkdómurinn væri búinn að taka sig upp en vildi samt ekki trúa því. Kærastinn var drifinn í mergstungu en læknirinn dældi í hann lyfi áður sem hefur ekki verið gert áður svo að kærastinn svaf meðan mergsýnið var skoðað og var rétt vaknaður þegar niðurstöður komu og  sýnið sýndi ekki merki um að sjúkdómurinn hefði tekið sig upp Joyful. Mikið hefði nú prinsessan haft gott af þessu lyfi líka á sama tíma FootinMouth þá væru neglur hennar meira við hæfi prinsessa í dag. Nú var kærastinn tekinn í fleiri athuganir og tekin af honum lyf og lyfjum breytt og ekkert markvert gerðist næstu daga. Læknarnir voru á því að þetta blóðójafnvægi væri vegna áhrifa frá lyfjum og helgin fór í það að bíða og "sprauta honum" sem hann gerði reyndar sjálfur. Í morgun voru svo jákvæðar niðurstöður úr blóðsýnunum og allt á réttri leið Smile.  Nú er bara að halda áfram með endurbatann og styrkinguna.

Allir heimilismeðlimir eru núna búnir að fá "svínaflensu" sprautu, kærastinn fyrir nær þremur vikum og asma-fólkið í síðustu viku svo fjölskyldan ætti ekki að hrína mikið í vetur Cool.

Prinsessan er alltaf að lofa sjálfri sér að vera duglegri við dagbókarjátningarnar enda ómögulegt að þú kæra dagbók fáir ekki fréttir, "dagbókin fyrst með fréttirnar" allavega er prinsessan eitthvað ósátt við fréttaflutning eða réttara sagt áherslur fjölmiðla að undanförnu. Miklu betra að hafa þetta bara á hreinu í dagbókinni og ekkert nöldur eða "besservissma" Shocking.

Bless kæra dagbók og áfram með suðaustan og sunnan áttirnar Kissing.

 

 


Höfundur

Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Vigfúsdóttir
Kennslulkona í leyfi frá störfum. Með mikla hreyfi þörf og ferðafíkill en sækist mest eftir hlýju loftslagi.

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • Kærustuparið!
  • Taka tvö af Kærustuparinu!
  • Prinsessan!
  • Jón Leifs!
  • myndir student 055

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 0
  • Sl. sólarhring:
  • Sl. viku:
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku:
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband