Jæja!!

Kæra dagbók Þá er komið að þriðju tilraun prinsessunnar í dag að láta þig frá fréttir Smile. Það var gífurlegur lúksus á prinsessunni í gær Cool. Hún fékk símtal frá góðri vinkonu sem bauð í mat sem eiginmaður vinkonunnar hafði eldað. Vinkonan er nefnilega svolítil prinsessa líka að vísu ekki af sömu ástæðum og prinsessan á bauninni. Heldur af því að hún er svo mikil dama og svo á hún eiginmann sem er mjög duglegur við að dekra hana og síðast en ekki síst þá á hún tvær ungar íði fagrar prinsessur með yndisleg bros Joyful. Þessi prinsessu vinkona hringdi sem sé og bauð kærustuparinu í mat og maturinn var rosalega góður, umhverfið yndislegt og félagsskapurinn frábær. Þar sem prinsessan er með svo mikið keppnisskap þá hefur hún velt því fyrir sér í allan dag hvernig hún geti toppað matinn, gestgjafana eða umhverfið og niðurstaðan er fengin. Prinsessan ætlar ekki að reyna við neitt af þessari upptalningu hún ætlar bara að bjóða vinkonunni og eignmanni hennar í mat seinna og er þá um leið búin að toppa matarboðið í gær með því að fá betri og skemmtilegri gesti LoL. Svona er nú prinsessan á bauninni alltaf klár!

Á ýmsu hefur gengið hjá kærustuparinu að undanförnu, fyrir utan tiltektir og yfirhalningu heima fyrir, sem hefur reyndar gengið mjög hægt, þá  hefur kærastinn verið svo illa haldinn af hálsríg að hann hallar ekki undir flatt heldur notar bara betra augað.

Bless kæra dagbók og bestu kveðjur frá söddu kærustupari Kissing.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ gaman að fá fréttir! skilaðu áfram baráttukveðjum til kærastans!!!

Sandra Jónasdóttir (IP-tala skráð) 31.10.2009 kl. 22:48

2 identicon

Jæja...  Hvað er í gangi ?  Er farinn að sakna þess að fá fréttir af ykkur. Vonandi gengur allt vel, ég veit að þetta er allt á réttri leið.

kveðja frá Akureyri

Ragnheiður Hulda Þórðardóttir (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 19:54

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Vigfúsdóttir
Kennslulkona í leyfi frá störfum. Með mikla hreyfi þörf og ferðafíkill en sækist mest eftir hlýju loftslagi.

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • Kærustuparið!
  • Taka tvö af Kærustuparinu!
  • Prinsessan!
  • Jón Leifs!
  • myndir student 055

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 22
  • Frá upphafi: 811

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband