Ræktun!

Kæra dagbók þá er prinsessan að gera tilraun til að endurheimta týnda vöðva FootinMouth. Það hefur nú reyndar hvarlað að prinsessunni að þessir vöðvar hafi bara aldrei verið til staðar og að þetta sé misminni hjá prinsessunni. Prinsessan mætti  eldsnemma í morgun,  réttara sagt í nótt, í ræktina og tók fram gamalt prógramm og tók við æfingarnar en einhverra hluta vegna gékk þetta ekki eins og prinsessuna minnti. Kannski hefur einhver óprúttin náungi komist í prógrammið og sett mun meiri þyngdir í æfingarnar en voru áður, allavega voru lóðin mun þyngri en minni prinsessunnar sagði henni Crying. Prinsessan svitnaði af áreynslu en þrjóskaðist þó áfram og kláraði prógrammið, teygði og dreif sig í kaffi á efri hæðina og þar var hún á heimavelli hafði engu gleymt og engin afturför Wink. Kannski að prinsessan sé svona gleymin, kannski var hún aldrei í neinni líkamsrækt bara í kaffirækt Blush hver veit!

Bless kæra dagbók og mikið væri gott ef þú létir nú hætta að rigna þetta hamlar nefnileg göngutúrum kærustuparisins því rigningin er svo fjári lárétt og þá lekur maskarinn á prinsessunni niður á kinn og það er ekki fallegt Kissing.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

hahaha ég er viss um að Ingvar Viktors hefur komist í prógrammið og breytt því!!!! þú skalt bara breyta tölunum og láta sem ekkert hafi í skorist og halda áfram að þamba kaffið uppi! Áður en þú veist af verður þú búin að hækka allar tölurnar sem Ingvar skrifaði inn á hjá þér, það er engin spurning. Það er eins gott að þú sért ekki að ´æða út og eyðileggja förðunina....það gengur ekki! Það er betra að fara út að ganga með púlsinn í 170 heldur en að fara út og láta krakka skarann hlaupa á eftir sér kallandi Batman!!!

 Kærar kveðjur til bóndans og gott að heyra að allt gangi þetta í rétta átt!

Sandra Jónasdóttir (IP-tala skráð) 19.9.2009 kl. 16:41

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Vigfúsdóttir
Kennslulkona í leyfi frá störfum. Með mikla hreyfi þörf og ferðafíkill en sækist mest eftir hlýju loftslagi.

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • Kærustuparið!
  • Taka tvö af Kærustuparinu!
  • Prinsessan!
  • Jón Leifs!
  • myndir student 055

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (4.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 26
  • Frá upphafi: 830

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 26
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband