Geymd en ekki gleymd!

Kæra dagbók þú ert ekki gleymd en prinsessan hefur átt við leti að stríða FootinMouth. Prinsessan hefur verið önnum kafinn siðan hún sté fæti á íslenska grund, önnum kafin við að vera komin heim Cool.

Prinsessan er með röðunaráráttu og voðalega veik fyrir hólfuðum boxum og kössum og ákvað þegar hún kom í "höllina" sína að nú þyrfti að raða aðeins betur. Prinsessan greip sir bróður traustum tökum þegar hann í sakleysi sínu mætti, samkvæmt venju, í kaffi með meðlæti um hádegi á laugardegi og dreif hann með sér í IKEA. Prinsessan holl Svíum, ákvað að nú væri kominn tími á ný náttborð eða öllu heldur litlar kommóður sem hægt væri að raða í. Það tók tímann sinn að fara í gegnum alla verslunina og þegar loks var komið á lagerinn til að sækja tvö stykki litlar sætar kommóður þá voru þær uppseldar, ein útlitsgölluð reyndar til Crying. Þarna eru samskipti prinsessunnar við IKEA síðustu þrjátíu  árin komin i hnotskurn, fyrst tekinn langur tími yfir Ikea bæklingi, varan valin, farið í verslunina og allt annað skoðað og síðan að sækja fyrirheitnu vöruna og þrátt fyrir að vara séð sögð til inn í búð þá er hún horfin af lager, væntanleg eftir tvær vikur ef hún kemst fyrir í pöntuninni GetLost. Þar sem að prinsessan er bráðlát kona þá er sko mikil hætta á að Ikea verði af viðskiptum prinsessunnar að þessu sinni og prinsessan verði búin að finna allt aðra lausn þegar kommóðurnar mæta í Ikea og jafnvel að hún hafi bara alls ekki verslað neitt heldur fundið einhverja allt aðra lausn á sínu tilbúna vandamáli eins og hún hefur svo oft gert áður Grin.

Kærastinn hefur verið þreyttur en heilsan hefur lagast eftir síðasta bakslag og þó undarlegt megi virðast hefur hann ekki enn verið dreginn á Súfistann eða Te og kaffi en brátt verður nú gerð bragarbót á því Joyful.

Bless kæra dagbók og prinsessan hefur þau áform að vanrækja þig ekki alveg Kissing.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Vigfúsdóttir
Kennslulkona í leyfi frá störfum. Með mikla hreyfi þörf og ferðafíkill en sækist mest eftir hlýju loftslagi.

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • Kærustuparið!
  • Taka tvö af Kærustuparinu!
  • Prinsessan!
  • Jón Leifs!
  • myndir student 055

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 829

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband