27.8.2009 | 07:54
Engar fréttir!!
Kæra dagbók enn er kærastinn að farast úr hálsríg vonandi fær hann einhverja bót mála þegar sjúkrahúsið verður heimsótt á eftir,ómögulegt að hafa hann svona hallandi undir flatt og stífan í baki .
Gærdagurinn var sko enginn prinsessudagur, dagurinn for í þvotta og þrif ekki hægt annað þar sem von er á heiðursgesti frá Íslandi á morgun . Reyndar komst kærustuparið í smá göngutúr út í Hagapark en hálsrígurinn kom í veg fyrir miklar æfingar. Hins vegar var "Miss Marble" í sjónvarpinu í gærkvöldi og mikið rosalega er þessi kona heppin, hún á vel stæða ættingja út um allt Bretland. Þessir ættingjar eru alltaf tibúnir að taka á móti henni og hafa hjá sér í ótilgreindan tíma eða allavega þar til hún hefur leyst morðgátuna en svo óheppilega vill til að morð eru alltaf framin í nágrenni við þann stað sem hún heimsækir einmitt þegar hún er í heimsókn .
Bless kæra dagbók þá er bara að drífa kærastann í blóðprufu og fá bót í rígnum og halda svo áfram að bíða spennt eftir gestinum .
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Hæ hæ vonandi fer að finnast bót á rígnum, gangi ykkur vel með allt saman!
Kannski maður byrji að horfa á sjónvarp, þetta hljómar spennandi þáttur. En merkilegt að það skuli alltaf vera framið morð nálægt þessari konu....
kveðja úr Hanfarfirði þar sem er ekkert veður.....
ps: það lá við slysi kl 5:30 í morgun þegar ég var að hjóla í vinnuna, það kom hjól á móti mér í beygju og það lá við árekstri...vá hvað það hefði verið fyndið...tvö hjól á ferð og klessa á hahahhahaa
Sandra Jónasdóttir (IP-tala skráð) 27.8.2009 kl. 12:26
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.