Flugdagur.

Kæra dagbók þá er min bara að fara að yfirgefa eiginmanninn í tvo sólahringa, það er ekki fallegt! Ég ætla að vera fulltrúi okkar beggja, tveggja manna maki Smile ekkert mál.

Skrítið bæði litlu börni verða sem sé orðnir stúdentar á morgun og þá hendi ég þeim að sjálfsögðu að heiman, geta séð um sig sjálf, reyndar gera þau það nú þegar og gengur mjög vel, duglegir ungarJoyful

Vigfús Almar útskrifaðist rétt eftir að pabbinn greindist í desember og var reyndar í prófum þá en stóð sig vel. Þá var smá gleiði og pabbinn komst aðeins heim í köku en ekki mikil veisla en góð. Inga María hefur alveg haldið sínu striki þrátt fyrir álagið sem á henni hefur verið og klára stúdentinn á þremur árum, "sem er mjög gott" og við ætlum að blása til veislu. Ég geri náttúrulega ekkert nema fara í klippingu er búin að fá frábært fólk til að aðstoða og sendi nöfnu hennar með hana í bæinn að finna kjól, það gékk víst mjög vel og amman segist enn vera við hestaheilsu, ég á reyndar eftir að sjá útkomuna Woundering já bæði á ömmunni og kjólnumWink

Eyjólfur er fremur slappur eftir erfiði síðustu vikna en öll gildi í blóðinu rjúka upp, við og hjúkrunarfólkið erum mjög ánægð með það. Hann ætti að ná góðri hvíld næstu tvo sólahringana WhistlingÉg hlakka til að hitta alla, næstum, þegar ég kem heim og ég veit að hugur Eyjólfs verður með mér.

Bless bless kæra dagbók.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Innilega til hamingju með báða ungana ótrúlega sterk þessi börn - enda börn foreldra sinna :-), gott að heyra að blóðgildin séu að aukast, kær kveðja SJ

Sandra Jónasdóttir (IP-tala skráð) 22.5.2009 kl. 21:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Vigfúsdóttir
Kennslulkona í leyfi frá störfum. Með mikla hreyfi þörf og ferðafíkill en sækist mest eftir hlýju loftslagi.

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • Kærustuparið!
  • Taka tvö af Kærustuparinu!
  • Prinsessan!
  • Jón Leifs!
  • myndir student 055

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 24
  • Frá upphafi: 828

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 24
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband