Sæælllllllllllll!

Kæra dagbók þá er búið að heyðra "Soffíu" í dag, systurnar fóru báðar Smile. Prinsessan hafði vit á að láta loka sig inn í sal með öðrum gömlum konum og gera "Pilates", með þessu tryggði prinsessan að ekki bærust fréttir heim til Íslands af styrðleika prinsessunnar þar sem að "stóra" systir var í tækja salnum og stóð sig þar með prýði Cool.

Systurnar nýttu gærdaginn vel, byrjuðu á því að drífa sig á markað sem reyndar lokaði tveimur tímum of snemma þar sem að "light rain" á Spáni er mígandi rigning á Íslandi og allir básar orðnir blautir og sölumenn hraktir. Sprækar systur með regnhlífar lét þetta ekki aftra sér og fóru í góðan göngutúr með fram fallegri strandlengjunni í Capo Roig og skellu sér svc á veitinga hús og fengu sér hádegismat. EFtir að hafa tekið smá síestu heima fóru systur aftur á flakk þar sem að sólin var farin að skína og hitinn orðinn fínn. Nú var það ströndin í Torrevieja sem var gengin og kvöldverður í bænum. Þegar heim var komið var það spænska sjónvarpið og orðabókin og fréttirnar komust bara nokkuð vel til skila þar að segja; systur telja sig hafa náð öllum helstu aðalatriðunum, flót á Tenerrife, snjór enn fyrir norðan og tískuvika í Valencia og sitthvað fleira. Þegar svo frægir amerríski leikarar fóru að spranga um skjáinn talandi spænsku þávar nú bara slökkt og skellt sér í bókalestur.

Bless kæra dagbók nú sitja systur út í sólinni með bjór og kaffi, eða annað hvort, bestu kveðjur Kissing.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sælar systur

Bara eitt sem er hægt að segja við þessu bloggi smá ÖFUND. Sé ykkur alveg fyrir mér sitjandi á pallinum með drykk  

Knús og skál yfir í sólina 

Ásta 

Ásta Eyjólfsdóttir (IP-tala skráð) 5.2.2010 kl. 22:46

2 identicon

O hvað þið hafið það gott þarna í sólinni og ekki verra að fá sér smá hvítvínsglas með. 

Góða skemmtun.

Anna Stína.

Anna Kristín (IP-tala skráð) 5.2.2010 kl. 23:40

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Vigfúsdóttir
Kennslulkona í leyfi frá störfum. Með mikla hreyfi þörf og ferðafíkill en sækist mest eftir hlýju loftslagi.

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • Kærustuparið!
  • Taka tvö af Kærustuparinu!
  • Prinsessan!
  • Jón Leifs!
  • myndir student 055

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 104
  • Frá upphafi: 953

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 104
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband