Sérviskan kemur oft niður á þeim sérvitra!!

Kæra dagbók þá er sérviska prinsessunnar aldeilis að koma niður á henni Crying. Prinsessan vill alltaf strauja allt hvort sem það er straufrítt eða ekki. Sængurverin eiga þurrkuð úti í góða loftinu og ef það er ekki hægt þá straujuð. Verra er hins vegar með fötin því nú var prinsessan að þvo miklar birgðar af fötum og er að reyna að strauja en það er bara svo margt annað sem hægt er að gera, heimsækja gamla vinnufélaga, hressvinkonur, viðra golfkylfurnar, athuga hvort kaffið á Súfistanum er eins gott og prinsessuna minnir, kaupa ryksugu sem ryksugar ein og óstudd, fá ættingja og vinina í kaffi eða eitthvað ljósara Cool. Prinsessan er að hugsa um að láta straujárnið kólna og strauja sálina svolítið Smile.

Hvað það verður veit nú enginn en erfitt er um það að spá en eitt er víst að alltaf verður ákaflega gaman þá  Grin.

Bless kæra dagbók og bestu kveðjur héðan af Íslandi þar sem kærastinn gerir ekkert annað en að hressast þó að hálsrígurinn slakni hægt Kissing.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Esku kærastapar velkomin heim.  Mikið er ánægjulegt að þið séuð komin heim, kíki á ykkur í næstu viku, er að fara burt með flugvél, ætli ég fái eins góða þjónustu og þið. 

Kæra kveðja,

Anna Stína.

Anna Stína (IP-tala skráð) 10.9.2009 kl. 13:42

2 identicon

Mikið er gaman að fá fréttir áfram, gott að þú gleymir ekki uppruna þínum þótt þú sért komin til Íslands. Straujárnið verður örugglega á sínum stað þegar þú þarft á því að halda en það er óvíst með allar búðir og fyrirtæki svo það er ágætt að forgangsraða þessu svona!! Bestu kveðjur og knús.

Sandra Jónasdóttir (IP-tala skráð) 10.9.2009 kl. 20:23

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Vigfúsdóttir
Kennslulkona í leyfi frá störfum. Með mikla hreyfi þörf og ferðafíkill en sækist mest eftir hlýju loftslagi.

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • Kærustuparið!
  • Taka tvö af Kærustuparinu!
  • Prinsessan!
  • Jón Leifs!
  • myndir student 055

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (3.5.): 3
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 25
  • Frá upphafi: 829

Annað

  • Innlit í dag: 3
  • Innlit sl. viku: 25
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband