Laugardagur!

Kæra dagbók þá er upprunninn laugardagur og allir bregða sér í laugarnar nema prinsessan á bauninni og hennar hirð sem er að fara í Vasasafnið og nú á ekki að gefast upp Cool.

Gærdagurinn gékk vel prinsessubróðirinn lenti á fyrirfram ákveðnum flugvelli og prinsessan fylgdi honum til höfuðborgar Svíaveldis Wink. Byrjað var á því að fá síðbúin hádegisverð á neðri hæðinn og síðan var kærastinn sendur inn til að passa íbúðina og hálríginn. Prinsessan dreif bróðurinn hins vegar á hjól og í "túristasiglingu" á milli eyja hér í Stokkhólmi. Síðan var "Gamla Stan" tekin út, farið í nördabúð og á kaffihús Grin. Svo gerðist hið óvænta; prinsessunni datt í hug að kíkja í verslun sem hún hafði oft gengið framhjá, í glugga verslunarinnar voru kvenmannsföt og meðal annars flott prjónuð peysa sem þurfti nánari athugunar við. Þegar inn var komið týndist bróðirinn, sem reyndar er ekki óalgengt en þar sem prinsessan stóð við dyrnar vissu hún að hann hafði ekki farið út og fór því að litast um Woundering. Þá kom bróðirinn askvaðandi og dró prinsessun innar í búðina sem reyndist þá ótrúlega stór og var líka húsgagna- og húsbúnaðarverslun. Þarna á neðst hæðinni leyndist elsti veggur Stokkhólms og tilheyrði borgarmúrnum á 12. öld og þarna voru húsgögn til sölu, svona Tekk vöruhúsar stíll. Næst var kíkt aðeins á opinber heimkynni Svíkonungs og þar voru vaktaskipti hjá lífverði konungs og prinsessan uppgötvaði þá að hennar lífvörður er nú mun myndarlegri, herðabreiðari og líklegri til að standa sig í starfi en væskillinn hjá Karli Gústav, bara samanburður á mynd er lífverði prinsessunnar í hag Grin.Prinsessunnar og Karls Gústavs.

Nú var farið að síga á seinni hlutann í úthaldi bróðurins og því var skeiðað áleiðis heim og tekin hjól til að létta heimleiðina  Shocking. Góða afslöppun heima yfir tapasréttum og pönnukökum ío gærkvöldi mun örugglega auka úthalds dagsins.

Bless kæra dagbók og þá er bara fyrir norðurbæjarbúar að vera búnir að klippa tréin og taka til áður en prinsessan og hennar hirð mætir á svæðið Kissing.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Það er sko einsgott að þú fékkst lífvörðinn strax út, ég var farin að hafa áhyggjur af því að þið væruð ein að þvælast svona án lífvarðar. Mér finnst þessi einkennisklæddi meira líta út eins og sýnishorn af lífverði 

Ég heyrði nýja kjaftasögu frá vinafólki að austan......menn og konur sem vinna við Álverið hafa víst verið iðin við að finna sér nýja maka  svo nú heitir það ekki lengur Álver heldur "sængurver"... sel það ekki dýrara...........

Kannski ég skelli mér í stuttan göngutúr fyrir svefninn og fái mér eitt rauðvínsglas og skáli við ykkur í huganum .....þetta er agalegt hvað maður er farin að nota það oft að skála við ykkur........verð að fara að finna aðra afsökun áður en þið komið heim.......

Sandra Jónasdóttir (IP-tala skráð) 29.8.2009 kl. 21:01

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Vigfúsdóttir
Kennslulkona í leyfi frá störfum. Með mikla hreyfi þörf og ferðafíkill en sækist mest eftir hlýju loftslagi.

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • Kærustuparið!
  • Taka tvö af Kærustuparinu!
  • Prinsessan!
  • Jón Leifs!
  • myndir student 055

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (29.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 6
  • Sl. viku: 21
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 21
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband