Bloggfærslur mánaðarins, janúar 2011
27.1.2011 | 14:34
Skjaldbaka eða ekki skjaldbaka!
Góðan daginn kæra dagbók enn situr prinsessan á sjúkrahúsinu og faðmar fartölvuna
.
Engar nýjar fréttir eru af kærastanum og ekki væntanlegar fyrr en eftir einhverja daga, hann er svipaður, slappur en gerir sína "rúmleikfimi" og fór út í smá göngutúr í gær .
Prinsessan er mikið að velta því fyrir sér að gera alvöru úr því að taka skjaldbökuna til fyrirmyndar . Þannig er nefnilega að ekki hreyfir skjaldbakan sig mikið en verður þó 200 ára og prinsessan fór í morgun og hreyfði sig örlítið í ræktinni og er dauðuppgefin á eftir
sér ekki fram á að verða 200 ára með þessu áframhaldi!
Í gærkvöldi fór prinsessan á púttmót hjá kvennadeild Keilis, já kæra dagbók prinsessan er í golfklúbb og spilar golf þó litlar sögur fari af árangri og afrekum . Prinsessan mætti ásamt góðri vinkonu á svæðið og skráði sig inn en lenti ekki í sama hóp og vinkonan. Leiknar voru tvisvar sinnum átján holur og eftir því sem meðspilarnir sögðu þá stóð prinsessan sig mjög vel og var að vonum nokkuð ánægð með eigin frammistöðu
. Vinkonan hefur ekki verið eins natin við golfið og prinsessan þó að þær hafi byrjað saman í upphafi og prinsessuna fýsti að vita í lok leiks hvernig vinkonunni hefði gengið. Vinkonan virtist ekkert forvitin og ósköp róleg yfir sínum árangri en sagði þó "ja Erla sagði að mér hefði gengið vel". Já já prinsessan sá fyrir sér að vinkonan hefði klárað án þess að verða sér til skammar svo prinsessan var fljót að segja "ég fór á 33" "já ég fór á 34" var þá svar vinkonunnar
sem sé vinkona prinsessunnar er bara mun betri en hún hefur sjálf haldið fram og má bara vera mjög ánægð með sinn árangur
.
Nú er prinsessan orðin svöng eftir "allar" æfingarnar í morgun og því verða fleiri fréttir af henni að bíða betri tíma því prinsessan er með eindæmum skapstygg fái hún ekki sína næringu .
Bless kæra dagbók og bestu kveðjur frá kærustuparinu sem jafnfram þakkar fyrir góðar kveðjur og góðar heimsóknir .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
25.1.2011 | 16:50
Íþróttir!
Góðan daginn kæra dagbók . Prinsessan er svoleiðis búin að stunda íþróttir síðustu dagana og jafnvel er svo farið að kærastinn er líka kominn af stað.
Kærustuparið hefur fylgst náið með gengi "strákanna okkar" í handboltanum í Svíþjóð en lítill munur hefur mælst á blóðþrýstingi kærastans fyrir og eftir leiki, kannski gott að ekki hefur verið mælt hjá prinsessunni . Prinsessan hefur líka verið dugleg að mæta í ræktina eftir að veðurfarið fór að fara í átt að prinsessu hitastigi, þó er eins og prinsessuna minni að hún hafi lyft þyngra og hreyft sig hraðar og svitnað meira áður en kuldaboli mætti á svæðið
. Betur má ef duga skal og þar sem veðurspá lofar útivist þá ætlar prinsessan ótrauð að halda í átt að fyrra formi og mæta vel. Ekki er hægt að prinsessan ein æfi sig, kærastanum er ekki til setunnar boðið. Hér á sjúkrastofuna mætir regulega ungur piltur sem talar með skýrum norðlenskum framburði og kennir kærastanum æfingar og lætur hann pumpa vöðvana. Þetta allt saman fer fram í rúminu, þ.e. kærastinn er slappur og ekki mikið ferðafær nema að sinna brýnustu nauðsynjum og liggur því í rúminu og gerir æfingar. Prinsessan er því farin að líta "rúmleikfimi/íþróttir" öðrum augum en áður og er bara mjög sátt og sæl með að kærastinn stundi "íþróttir" í rúminu þó að hún sé víðs fjarri
jafnvel að stunda sínar íþróttir í Hress.
Litlar fréttir ef þá nokkrar eru aðrar af kærastanum, hann er enn á "veika" tímabilinu en er hressari í dag enn í gær og prinsessan situr hjá honum og knúsar tölvuna .
Bless kæra dagbók og bestu kveðjur héðan af sjúkrahúsinu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.1.2011 | 19:48
Súkkulaði kaka fyrir tvo.
Góðan daginn kæra dagbók . Enn situr prinsessan hjá kærastanum á sjúkrahúsinu og lætur fara vel um sig í biluðum "lazy-boy" stól
. Stóllinn er orðinn lúinn og lyftigræjan eitthvað farin að gefa sig. Prinsessan var búin að koma stólnum í ekta "lazy-boy" stöðu og slakaði þar á með tölvuna í fanginu þegar í gættina kom brosandi starfsstúlka og bauð kaffi eða te, prinsessan hugðist reisa sig upp en sat föst, pikkföst. Stóllinn neitaði gjörsamlega að fara í upprétta stöðu og prinsessan veit núna hvernig henni liði ef hún væri 170 kíló og þyrfti að standa á fætur. Þarna henti prinsessan sér fram og aftur í stólnum og reyndi að losa um tökin en ekkert ætlaði að gerast, loksins komst hún þó á fætur og þakkaði fyrir í huganum að ekki fleiri voru viðstaddir, allavega hefði hún hlegið ef þetta hefði verið einhver annar en hún að koma sér úr stólnum
.
Skömmu síðar heiðruðu, heiðurs hjón, kærustuparið með heimsókn. Kærustuparinu fannst ofsalega gott að fá svona hresst og fallegt fólk í heimsókn og sem betur fer höfðu þau (eða hann) vit á að koma ekki með afskorin blóm, því það er sko aldeilis bannað þegar menn eru "penískir". Prinsessan sá vel að kærastinn hresstist vel við heimsóknina og ekki sakaði að góður vinur hringdi líka. Foreldrar prinsisns komu líka í heimssókn með nesti með sér, þ.e. fyrir kærustuparið. Prinsessan heldur því statt og stöðugt fram að tengdamóðir hennar haldi að prinsessan sé að farast úr næringaskorti og ónógu fæði, spurning að biðja hana um að ganga meira með gleraugun svo hún sjá prinsessuna í réttu ljósi .
Prinsessan prjónar og prjónar og les blöðin og rífst við þau, leysir krossgátur og sudokur. Nýjasta prjóna-afurðin er lopa-teppi handa Jóni Ormi eðalketti, hann svaf á því síðustu nótt og vaknaði hress í morgun, eflaust svo vel úthvíldur að hann hefði getað veitt hvaða fugl sem væri. Jón dreif sig út en var fljótur inn aftur þar sem ekki viðraði fyrir þessa elsku svo að inni-músin Heiða varð að duga í veiðiskapinn þennan daginn, ekki er hægt að segja afinn og amman hafi verið óánægð með það .
Annars er allt við það sama hjá kærustuparinu, beðið eftir að blóðþættirnir fari upp og farið varlega á meðan, smá hiti og höfuðverkur en allt undir "kontról". Bless kæra dagbók og bestu kveðjur frá kærustuparinu .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
21.1.2011 | 19:48
Af göldrum!
Kæra dagbók þá er dagur að kveldi komin og prinsessan hefur setið við hlið kærastans í dag og prjónað. Kærastinn hefur vel við unað, slappur og lasin en þó í "stabílu" ástandi og ekkert faðmað gólf í dag
. Gestir hafa heiðrað kærustuparið hér á sjúkrahúsinu í dag og hefur parið haft af því nokkuð gagn en aðalega gaman
.
Hins vegar varð smá uppnám á heimili prinsessunnar í gærkvöldi . Kærastinn hringdi til að bjóða góða nótt og þegar að prinsessan var að tala í símann fer Jón eðalköttur að fylgjast með svo prinsessan áleit að hann vildi fá að tala við "afa" og rétti símann að eyra Jóns. Jón tekur við að mala á hæsta mali og svo hátt að "afi" heyrði til hans í gegnum símann og fer þá að tala meira. Jón stendur þá upp og horfir stórum augum (sjáöldrin þanin til hins ítrasta) á símann og svo á prinsessuna/ömmu sína, reynir að kíkja bakið símann stekkur svo undir stól og horfir á ömmu sína og út úr svip hans mátti lesa " hvað ertu búin að gera við afa, troða honum inn í þetta litla box, það er ekki fallegt"
! Prinsessan kvaddi kærastann og reyndi svo að blíðka Jón en hann virtist bara skelkaður og vildi ekkert með ömmu sína hafa þó hún væri búin að fela "boxið", hann ætlaði sko ekki að láta setja sig þarna inn líka. Það tók Jón góða stund að jafna sig á "göldrum" ömmu sinnar en sofnaði svo á gólfinu hjá henni og svaf þar í alla nótt, alsendis áhyggjulaus um "galdranornina".
Bless kæra dagbók og bestu kveðjur frá kærustuparinu sem situr/liggur núna og horfir á fréttir
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
20.1.2011 | 12:47
Spurning um að vekja athygli!
Góðan daginn kæra dagbók .
Nú situr prinsessan á sjúkrahúsinu kærastanum til skemmtunar (það var þá skemmtun) og svo situr hún bara og faðmar tölvuna .
Kærastinn náði að raska ró fjölskyldunnar í fyrrinótt . Reyndar er komin reynsla á það að einhverjum dögum eftir lyfjagjöf verður kærastinn mjög slappur vegna blóðleysis (ýmissa þátta í blóðinu) og þá þarf prinsessan að vera dugleg að fylgjast með honum og þá leikur hún afskiptasama, kemur allt við, konu
. Á þriðjudagskvöldið var kærastinn bara ágætleg hress og var í "leyfi" heima svo prinsessan var ekki með neinar áhyggjur og eftirlitð svolítið á "hold". Fjölskyldan hélt öll fremur snemma til hvílu en kærastinn sá til þess að hin þrjú (fjögur) ruku upp með andfælum rétt fyrir fimm, allir búnir að sofa nóg, allir á fætur og gera eitthvað
. Kærastinn ætlaði sem sé að kasta af sér vatni en þá vildi ekki betur til en svo að blóðleyfarnar náðu ekki upp til heila svo kærastinn steinlá á baðherbergisgólfinu með öllum þeim látum sem hans líkami gat útbúið á þessum stað. Prinsessan var eitursnögg inn á baðherbergi með dótturina á hælunum og sonur lallað inn skömmu síðar og Jón Ormur var sömuleiðis mættur á svæðið, þarna var sem sé hægt að láta fjölskylduna alla glaðvakna á sama augnablikinu og beint fram úr, ekkert snús eða snúa sér á hina
. Kærastanum var hagrætt þarna á gólfinu af mæðgininum en dóttirin hringdi á sjúkrabíl og inn á deildina sem kærastinn liggur á. Prinsessan skellti sér í leppana og hélt á sjúkrahúsið á eftir sjúkrabílnum og þar var kærastanum komið fyrir á "svítunni" fékk vökva í æð og góða aðhlinningu og öll "lífsmörk" mæld, allt kom vel út miðað við aðstæður. Prinsessan hélt heim skömmu fyrir átta og ákvað að knúsa "litlu" börnin sín og leggja sig í svona tvo tíma, vitandi kærastann í öruggum höndum. Ekki var nú kærastinn á því að láta morguninn líða í rólegheitum, ekki var hægt annað en að leyfa starfsfólkinu að hafa pínulítið fyrir sér. Kærastinn ákvað sem sé að fara, aftur, að skvetta af sér vatni en þar sem enn var jafnlangt fyrir blóðleyfarnar að fara upp í höfuð þá steinlá kærastinn svo glumdi í um alla deild og allar þessar ljúfu stúlkur (læknar, hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar, nemar) þustu inn til kærastans til að aðstoða hann
. Kærastinn var settur í hinar ýmsustu rannsóknir, höfuð, hjarta og fleiri líffæri voru skoðuð og ekkert óvanalegt kom í ljós svo kærastinn virðist nokk ósár eftir þessar "gólffaðmanir"
. Þegar prinsessan mætti á svæðið fékk hún fréttir af atburðum en þó ótrúlegt megi virðast þá eru áverkar hverfandi á kærastanum hann er alltaf jafn sætur og myndarlegur
.
Núna er kærastinn á "veika" tímabilinu en fljótt er brugðist við öllum merkjum um sýkingu og hér er þjónustan frábær .
Bless kæra dagbók og bestu kveðjur frá kærustuparinu sem ætlar (allavega prinsessan) að fylgjast með handboltaleik í kvöld .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
17.1.2011 | 10:47
Af eðli og viðkvæmum sálum!
Góðan daginn kæra dagbók . Nú situr kærustuparið og bíður eftir niðurstöðum um blóðprufu og um leið eftir næsta skrefi en líklega fær kærustuparið að eyða síðdegi og næstu nótt heima í firðinum fagra
.










Vinir og fjölskylda | Breytt s.d. kl. 10:51 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
14.1.2011 | 15:18
Föstudagur í dag!
Kæra dagbók þá lætur prinsessan frétta af sér en hún er við nokkuð góða heilsu þrátt fyrir að vera þurr og flekkótt í húðinni á "kroppnum"
.
Hitastigið hefur heldur sigið í átt að prinsessu-stigi þó enn megi betur. Kærastinn hefur nú fengið fyrsta lyfjaskammt, hver skammtur fer inn á fimm dögum, þess vegna fær hann smá frí í kvöld. Hann fær að sofa heima hjá kærustunni fram á sunnudag ef vel gengur og fær jafnvel að vera með annan fótinn heima einhverja næstu daga. Gaman að greina frá því að "svítan" bíður þó alltaf eftir honum á Hringbrautinni .
Prinsessan er nokkuð iðin í handavinnunni en er sér til mikillar gleði búin að uppgötva nýja leiki á þessu fína "interneti" og hefur hún nokkuð gaman af hins vegar fara litlar sögur af gagninu af þessum leikjujm . "Facebook" er lokuð á Landspítala Háskólasjúkrahúsi, eflaust gert til varnar gögnum sem geymd eru í tölvukerfi sjúkrahússins. Væri þá ekki nær að hafa aðra tengingu fyrir "gesti" svo þeir kæmust á andlitsbókina sem er náttúrulega einfaldlega lífsnauðsynlegt, sálar og líkamsheill "gesta" liggur bara hjá garði við þessa lokun.
Prinsessan (þessi mjög svo klára) er nefnilega búin að komast að því að það er auðveldara að "brjósta inn" í þetta viðkvæma kerfi sem gestir hafa aðgang að, heldur en væri ef "gestirnir" væru á sér tenginu (reyndar hefur prinsessan þetta eftir einu tölvuséníinu). Þannig að það að loka á andlitsbókina er í raun bara til að forðast vírusa og að starfsfólk sé ekki að eyða tíma á "face-inu", hins vegar sýnist prinsessunni þetta starfsfólk aldrei setjast niður og hvað þá að það geti þá kveikt á tölvu, alltaf verið að hugsa um kærustuparið.
Prinsessan er frekar fúl yfir þessari lokun og hefur orðið þó nokkrar áhyggjur af sinni sálarheill, það gæti eitthvað "skeð" sem hún missti af því hún hefur ekki "facebook"! Er ekki tími til komin að ræða þetta við stjórnendur? Þetta getur reyndar verið vegna sparnaðar. Núna er til dæmis "internettengingin" ekki lengur þráðlaus heldur situr prinsessan og flækir sig mismikið í snúruna sem tengir hana við umheiminn. Í landi jafnaðar þar sem kærustuparið dvaldi um nokkurra mánaðar skeið, einmitt á sjúkrahúsi lengst af, þar var þráðlaus "internettenging" og þar var sálarheill prinsessunnar ekki stefnt í voða þar sem hún hafði óheftan aðgang að "facebook" og þó er nú ýmislegt sparað þar
.
Jæja kæra dagbók þá ætlar prinsessan að fara að kveðja en hún og kærastinn eru alveg rosalega ánægð með allar góðu kveðjurnar og óskirnar sem þau hafa fengið, það er nefnilega svo hollt og gott að fá góðar kveðjur. Bless kæra dagbók og bestu kveðjur frá prinsessunni á bauninni og kærasta hennar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
12.1.2011 | 14:02
2011 jahérna!
Kæra dagbók þá er prinsessan komin á ról og ætlar aðeins að heilsa upp á þig .
Því miður er prinsessan ekki með góðar fréttir því nú situr hún með gúmmíhanska í gulum slopp á Landsspítala Háskólasjúkrahúsi við Hringbraut kærasta sínum til skemmtunnar (og náttúrulega rosa sexy í þessari múnderingu). Kærastinn var nefnileg greindur aftur með bráðahvítblæði svo nú er ný meðferð tekin við sem við reyndar vitum ekki alveg hvernig verður þar sem allavega tvær leiðir eru mögulegar en ætti að skýrast í lok mánaðar. Allavega vinna framundan .
Greiningin kom síðasta föstudag en kærastinn fór ásamt dóttur sinni á laugardagkvöldið og hélt uppi stuði með rokkgítarleik og söng á nýársfagnaði Þrasta. Dóttirinn söng nokkur lög með hljómsveit pabba síns og prinsessan fékk sýnishorn á dvd þar sem að hún komst ekki út þar sem veðrið bauð ekki upp á útiveru fyrir prinsessur . Hins vegar hefur prinsessan áreiðanlegar heimildir fyrir því að þau feðginin hafi staðið sig með miklum sóma sem er samhljóma því sem prinsessunni fannst þegar hún horfði á dvd myndina
. Prinsessan hefur hug á að grobba sig meira og setja myndskeiðið hér inn á bloggið svo að þú kæra dagbók getir notið. Það verður prinsessan hins vegar að gera heima hjá sér og bíður það því aðeins, ekki mikið.
Svo eru það beinar fréttir af prinsessunni, sem eins og þú kæra dagbók veist, er mjög róleg og yfirveguð í öllum sínum gjörðum og sýnir aldrei af sér fljótfærni. Í desember verslaði prinsessan sér "bodylotion" af ódýrustu gerð, sem hún reyndar hefur oft verslað áður og vel líkað, nema að nú var búið að "breyta" umbúðunu. Eftir næstu sturtu dundaði prinsessan við að bera á sig, vel og vandlega, búið var að bæta "lotionið" nú var það þykkara og á brúsanum stóð "firming". Var þetta ekki alveg upplagt fyrir prinsessu sem skyldi nú ná stinnri og flottri hún ungmeyjunnar og ekki var "lotionið" sparað eftir næstu sturtuferðir. Um svipað leiti fer að bera á "sveppasýkingu" á húð prinsessunnar svo hún fær sveppalyf sem dró úr einkennum sem svo hurfu á fáum dögum. Tók þá prinsessan til við fyrri "lotion-áberingu" en tekur þá ekki "sveppurinn" sig upp aftur svo að nú var læknirinn heimsóttur og hann ávísaði á pillur sem skyldu gera kraftaverk. Þetta var prinsessan búin að bryðja í þrjá daga og passa vel upp á húðina sem óneitanlega klæjaði í en þá var bara borið meira "lotion" á. Á Þriðja degi fékk prinsessan mjög góðan og skemmtilegan gest í heimsókn og sat í stofunni (bauð gestinum ekki upp á neitt) og spjallaði og bar sig illa við gestinn og sýndi þessa ferlegu "sveppasýkingu" um allan búk. Þá byrjar dóttirin eitthvað að góla á efri hæðinni. Prinsessan kváir þar sem að hún áleit þessi gól sér ætluð og ef grant var hlustað mátti heyra smá fliss í þessu góli . Hvað var dóttirin að góla "mamma þú hefur verið að bera á þig "shower cream, þetta bodylotion þitt er sturtusápa ég set það bara í sturtuna". Sem sé prinsessan sem ætlaði að fá stinna húð tvítugu stúlkunnar var á góðri leið með að brenna af sér húðina með því að bera á sig sápu eftir sturtu
Prinsessan hefur því ákveðið að bíða með húð hinnar tvítugu og ber nú á sig "Alo Vera" og er hætta éta "meðalið"
Kæra dagbók þá segi ég nú bless í bili, við kærustuparið erum í baráttuhug og höldum ótrauð áfarm .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar