Góða veðrið að trufla!!

Kæra dagbók kærustuparið fór snemma í morgun í eftirlit upp á sjúkrahús og allt er í góðu gengi Smile. Blóðið á góðu skriði og sveppurinn á undanhaldi og dregið úr lyfjanotkun, sem sé framfarir góðar Wink.

Eftir sjúkrahúsheimsóknina, sem var nokkuð löng m.a. vegna þess að apótekið var heimsótt, var farið út að borða. Prinsessan var nú búin að bíða spennt eftir því en hvað gerist í apótekinu, prinsessan náði varla að byrja að bíða þegar hún var kölluð upp og var ekki vísað frá til að bíða í næstu biðröð heldur afgreidd strax og engin vandkvæði, "svo bregðast krosstré sem aðrir raftar" W00t.

Eftir góðan mat var það göngutúr og svo kaffihús og beint heim. Þegar kærustuparið stóð á tröppunni við útidyrahurðina skall á haglél, fyrst hélt prinsessan að þetta væru svona stórir regndropar eftir sólina og hitann en sá svo að þetta voru klakahögl, eins gott að verða ekki fyrir þessu Pinch

Nú er það bara prinsessulíferni, rólegheit og góður matur heim, prinsessan vinnur nefnilega að því hörðum höndum að láta ekki fallþunga kærustuparsins verða minni við heimkomu  en brottför þó kærastinn hafi tapað töluverðum fjölda kílóa í fyrstu12 vikurnar Sideways.

Bless kæra dagbók og ég get huggað þig á því að krónprinsessa prinsessunnar á bauninni fær afmælisgjöf þegar kærustuparið kemur heim Kissing.

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Hæ hæ, til hamingju með litlu prinsessuna! hún hefur örugglefa þolinmæðina frá foreldrum sínum og bíður rólef eftir pakkanum sínum hér er núna fallegt veður´ekta til að skella sér Helgafellið. Þyngsti og léttasti karlmaðurinn hér á heimilinu eru farnir norður í sveitina og ég nýkomin úr vinnunni og er að hugsa um hvort ég eigi að fara og hreyfa mig aðeins´eða laga til .........hummm fyrri kosturinn er aðeins meira spennandi.......vá hvað það er stutt í heimkomu..... hafið það sem allra best

Sandra Jónasdóttir (IP-tala skráð) 14.8.2009 kl. 21:18

2 identicon

VÁ ég hef greinilega staðsett mig vitlaust á lyklaborðinu....f í stað g ég er EKKI búin að fá mér rauðvínsglas heheheh

Sandra Jónasdóttir (IP-tala skráð) 14.8.2009 kl. 21:19

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Vigfúsdóttir
Kennslulkona í leyfi frá störfum. Með mikla hreyfi þörf og ferðafíkill en sækist mest eftir hlýju loftslagi.

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • Kærustuparið!
  • Taka tvö af Kærustuparinu!
  • Prinsessan!
  • Jón Leifs!
  • myndir student 055

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (15.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 102
  • Frá upphafi: 949

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 102
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband