Færsluflokkur: Bloggar
5.2.2010 | 11:31
Sæælllllllllllll!
Kæra dagbók þá er búið að heyðra "Soffíu" í dag, systurnar fóru báðar . Prinsessan hafði vit á að láta loka sig inn í sal með öðrum gömlum konum og gera "Pilates", með þessu tryggði prinsessan að ekki bærust fréttir heim til Íslands af styrðleika prinsessunnar þar sem að "stóra" systir var í tækja salnum og stóð sig þar með prýði .
Systurnar nýttu gærdaginn vel, byrjuðu á því að drífa sig á markað sem reyndar lokaði tveimur tímum of snemma þar sem að "light rain" á Spáni er mígandi rigning á Íslandi og allir básar orðnir blautir og sölumenn hraktir. Sprækar systur með regnhlífar lét þetta ekki aftra sér og fóru í góðan göngutúr með fram fallegri strandlengjunni í Capo Roig og skellu sér svc á veitinga hús og fengu sér hádegismat. EFtir að hafa tekið smá síestu heima fóru systur aftur á flakk þar sem að sólin var farin að skína og hitinn orðinn fínn. Nú var það ströndin í Torrevieja sem var gengin og kvöldverður í bænum. Þegar heim var komið var það spænska sjónvarpið og orðabókin og fréttirnar komust bara nokkuð vel til skila þar að segja; systur telja sig hafa náð öllum helstu aðalatriðunum, flót á Tenerrife, snjór enn fyrir norðan og tískuvika í Valencia og sitthvað fleira. Þegar svo frægir amerríski leikarar fóru að spranga um skjáinn talandi spænsku þávar nú bara slökkt og skellt sér í bókalestur.
Bless kæra dagbók nú sitja systur út í sólinni með bjór og kaffi, eða annað hvort, bestu kveðjur .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
4.2.2010 | 09:25
Myrkraverk!
Góðan dag kæra dagbók þá framdi prinsessan myrkaverk í gærkvöldi . Já prinsessan ók út á flugvöll í kolníðamyrkri, engin lýsing nema frá bílljósunum og endurskinsmerkjunum meðfram þjóðveginum. Þegar á flugvöllinn kom tillti prinsessan sér niður við komusalinn og ákvað að bíða þar komu "stóru" systur en eftir smá stund uppgötvaði að fólk kom og leit að skjáinn með komu flugvéla og sagði Gathwik og gékk í burtu. Þetta þótti prinsessunni vorvitnilegt og dreif sig í að standa upp og líta á skjáinn en á ekkert merkileg, vélin að lenda. Þar sem prinsessan er skynsöm kona ákvað hún að spurjast fyrir í upplýsingum hvort þetta væri ekki eini komustaður farþega úr flugi, nei nei "terminal" 2 var þá uppi og auðvitað áttu farþegar frá Gathwik að koma þar út. Prinsessan hraðaði sér upp þar sem að vélin var lent, ætlaði sko ekki að láta "stóru" systur standa þarna einhversstaðar eina og umkomulausa. Þetta var töluverður gangur en "stóra" systir stóð sig sko í stykkinu og kom síðust farþega út um hliðið svo þetta reddaðist allt saman . Síðan héldu tvær systur heim í kolníðamyrkri, ferðin gékk mjög vel og svo var skálað í smá freyðivíni við heimkomu .
Nú er systur að hugsa um að skella sér á litinn og skemmtilegan markað að njóta áfram lífsins.
Bless kæra dagbók og bestu kveðjur til allra heima og prinsessan var að velta því fyrir sér hvort að t.d. þeir sem eiga stórafmæli á næstu mánuðum, verða kannski 60 ára, eigi ekki að eiga afmæli í kyrrþey og njóta nokkurra daga hér¨!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.2.2010 | 12:35
Sólin!
Kæra dagbók prinsessan búin í "Soffíu" í dag og var hvorki landi né þjóð til mikillar skammar. Núna fór prinsessan í tækin og reyndi að brenna "speki" á eftir. Hér æfa menn öðruvísi en heima, menn nota bara eitt tæki í einu og einoka það í mislangan tíma, ein var í 15 mínútur með tækið sem prinsessan hafði hugsað sér og nota og svo hoppaði karl í það og þá ákvað prinsessan að sleppa þessu tæki í dag.
Núna bíður prinsessan spennt að fá "stóru" systur í heimsókn, hún kemur í kvöld og verður eitthvað fram í febrúar. Prinsessan hefur ákveðið að þetta sé húsmæðraorlof því það er víst alltaf svo mikið fjör í þeim.
Prinsessan gékk niður í bæ í gær, eftir fyrrverandi járnbrautarteinum sem nú er búið að gera að göngustíg. Þetta var mjög skemmtileg gönguleið en tók rúmar tuttugu mínútur að komast niður í bæ svo þetta er bara góður göngutúr. Þegar prinsessan hefur lagt svona langan göngutúr að baki og á annan jafnlangan eftir þá finnst henni að hún eigi skilið eitthvað gott. Hún dreif sig því á kaffihús sem hún hafði ekki farið á áður og valdi það vegna þess að þjónustufólkið var svo huggulega klætt. Þetta var sem sé í fyrsta og síðasta skiptið sem prinsessan fer á þetta kaffi hús. Hún byrjaði á að bögla út úr sér á spænsku að hún vildi kaffi í bolla ekki í glasi og til öryggis sagði hún þetta líka á ensku og þjónninn þóttist nú alveg vera með þetta á hreinu, eins bað hún um lista yfir meðlæti, kökkur og fleira. Þjóninn kom til baka með kaffið í glasi og það er ekki drekkandi svo prinsessan spurði hvort hann hefði ekki átt bolla en þá kvaðst þjóninn hafa gleymt því og sneri til baka og prinsessan áræddi þá að minna hann á listann yfir meðlætið. Þjóninn kom til baka, búinn að hella kaffinu yfir í bollann og ekki með kökulist og svo spígsporaði hann bara um og horfði út í loftið, svolítð fauk nú í prinsessuna, hún sötraði kaffið og borgaði fyrir sig upp á "cent" og hélt ábrott með sveiflu . Óþarfi að stoppa þarna aftur.
Bless kæra dagbók og bestu kveðjur heim
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
2.2.2010 | 13:16
Sumt er erfiðara fyrir prinsessur!
Kæra dagbók þá brá prinsessan sér í hana "Soffíu" í morgun sem henni þætti nú frekar seint heim á Íslandi, komið undir hádegi en það er góður tími kl. 11:00 . Nafnið á þessum leikfimitímum gefur til kynna að þarna sé sérstaklega lögð áhersla á að styrkja magann, botninn og lærin og prinsessunni fannst þetta því upplagðir tíma fyrir sig. Hún var nú borubrött eins og áður hefur komið fram þegar hún mætti í fyrsta tíma og taldi sig mun betri en þessar sem voru tíu og tuttugu árum eldri en hún og með bumbu í þokkabót þó annað hefði komið á daginn. Prinsessan uppgötvaði hins vegar í morgun að sumar æfingar eru bara erfiðari fyrir hana en suma aðra eins og til dæmis allar fót eða læra lyftur enda er 75% af þunga prinsessunnar í lærunum á meðan flestar hinna kvennanna eru ekki með nema um 20% af eigin þyngd í þeim. Þetta samsvarar því að á meðan aðrar kvennsur taka 20 kg í bekk þarf prinsessan að lyfta 75 kg svo þetta er vægast sagt mjög ósanngjarnt gangvart prinsessunni. Prinsessan stendur semsé höllum fæti í fótlyftum en nær sér nokkuð á strik í magaæfingunum og er bara nokkuð framalega í lóðalyftingum með höndum svo þetta kannski jafnast aðeins út en þar sem tímarnir leggja aðaláherslu á botninn og lærin þá er útkoma prinsessunnar, vægt til orða tekið, slæm í leikfimistímunum .
Prinsessa brá sér á golfvöllinn í gær og æfði sig að slá kúlur út í loftið og hún var reyndar ánægðari með frammistöðuna þar en í "maga-, botns- og læra-tímum" þó að ekki hafi hún slegið nein met. Upphafshöggin með "dræfernum" voru ásættanlega löng og bein svo prinsessan snéri sér að einhverju sem kallast víst brautartré, samt ekki hálfviti, heldur minni og prinsessunni hefur gengið illa með hingað til og ekki viljað nota. Nú brá svo við að hún var að slá yfir hundrað metra og nokkuð beint, kannski hefur þurr jarðvegur og grasleysi hjálpað til en allavega var kylfufyrirbærið tekið í sátt og verður notað aftur við æfingar síðar. Reyndar eru þetta tvær kylfur, önnur merkt 22° og hin 26° hvað svo sem það heitir á "golfaramáli", prinsessan gerir sér þó grein fyrir því að þetta eru gráðurnar á hallanum á kylfuhausnum sem er svona lítil hálfkúla. Nú þarf prinsessan að drífa sig á tvö tungumála námskeið annað í spænsku og hitt í golfaramáli .
Bless kæra dagbók nú nýtur prinsessan sólar úti á palli í ermalausum bol og með kaffi sér við hlið og ætlar að njóta sólar í einhverja stund en takast svo á hendur könnunar göngutúr, bestu kveðjur til ykkar allra .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.2.2010 | 13:45
Dekurdúkka!!
Kæra dagbók þá er prinsessan búin að fara í "Soffíu" í morgun og dreif sig svo í fótsnyrtingu á sama stað á eftir. Prinsessan getur nú sprangað um götur berfætt í sandölum með dökk, dökk rauðar neglur, að visu svolítið erfitt á kvöldin því þá yrðu fæturnir bláir og spurning hvernig það færi saman .
Prinsessan horfði á handboltaleikinn í gær og henni fannst "strákarnir okkar" svolítið erfiðir í seinni hálfleik því þá blótaði prinsessan á góðu íslensku sjóaramáli innan um sér bláókunnugt fólk og ekki bara einu sinni.
Eins og áður segir skellti prinsessan sér í fótsnyrtingu í morgun en í líkamsræktarstöðinni er líka snyrti- og nuddstofa. Prinsessan er vön að sækja fótsnyrtingu til gamals nemanda og á alltaf góðar stundir á þeirri snyrtistofu og kemur þaðan eindurnærð og betur útlítandi. Prinsessunni fannst þessi breska viðkunnalega stúlka gera allt í vitlausri röð við fótsnyrtinguna. Fyrst setti hún kornakremið á og nuddaði, þá var það fótabaðið og neglurnar snyrtar, núddað með kremi og svo skrúbbað og ein sem var í réttri röð var að naglalakkið kom síðast . Prinsessan sat þarna í stól, ekki neinum hægindastól, og ekki með teppi yfir sig eða neitt og enni varð nú bara kalt og svo var fótanuddið ekki eins gott og hjá Guðrúnu. Prinsessan hefur því tekið þá ákvörðun að bregða sér á sína stofu "Gallerí Útlit" þegar hún kemur heim og fara bara oft .
Bless kæra dagbók og bestu kveðjur til allra sem nenna að fylgjast með prinsessubullinu, það er alltaf svo gaman að fá kveðjur að heiman
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
31.1.2010 | 10:12
Handbolti!
Kæra dagbók hér hefur verið sól og blíða síðustu daga og gott að spóka sig í góða veðrinu . Prinsessan fór á "Caruso" í gær, nei ekki í henni Reykjavík, heldur samnefndum stað hér í Torrevieja í eigu sömu aðila og í Reykjavík. Staðurinn er að vísu lokaður fram yfir miðjan mars vegna vegaframkvæmda en var sérstaklega opnaður í gær svo að Íslendingar á svæðinu gætu horft saman á handboltann og eins verður í dag, boðið var upp á pizzu og vínglas eða bjór á 1 . Það var virkilega gaman að hitta þarna fólk sem hrópaði hvatningarorð að Íslenska landsliðinu á íslensku !
Eftir leikinn fór prinsessan í "stórverslunina" og verslaði sér stóra nautasteik sem hún svo eldaði sér heima og borðaði svo af bestu lyst eftir að hafa setið aðeins út á palli þegar sólin var að setjast en það gerði hún upp úr sex og þá fór að kólna.
Prinsessan ætlar að endurtaka leikinn í dag og fara og horfa á leikinn um bronsið og njóta félagsskaparins og þér að segja kæra dagbók þá er ekki bara fólk um sjötugt hér! Prinsessan hitti fiðlukennara á eftirlaunum en hún hafði kennt á fiðlu í 40 ár, meira að segja náð á kenna dóttur prinsessunnar í nokkrar vikur þegar hennar kennari var í leyfi. Prinsessan man eftir þessum kennara í Tónlistaskóla Hafnarfjarðar stjórnandi þar af röggsemi og gleði og virtist hafa stjórn á öllu því kom það prinsessunni ekki í óvart þegar henni var tjáð að þetta væri konan sem væri potturinn og pannan í hittingum Íslendinga á svæðinu og stæði fyrir ýmsum uppákomum eins og félagsvist, mínígolfi og ýmsu fleiru .
Bless kæra dagbók og bestu kveðjur heim í kuldann og hafið það sem allra best og farið vel með ykkur þar sem prinsessan er til staðar til að fara vel með ykkur
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
30.1.2010 | 10:21
Matur eða MATUR!
Kæra dagbók þá er prinsessan vöknuð eiturhress og strengjalaus þökk sé pilates-tímanum .
Eftir leikfimina í gær átti prinsessan rólegan dag, verslaði í matinn, tók sér góðan göngutúr og skúraði pallinn og sat aðeins úti í sólinni. Þá tók prinsessan stóra ákvörðun, já nú var tími til kominn að prófa matinn á Mangó bar! Væri maturinn eitthvað líkur vertunum þá mætti sko ekki missa af honum. Prinsessan dreif sig í bifreiðina og ók af stað í fallegu veðri en sólin var orðin ansi sigin á himninum og allt að taka á sig bleikan óraunveruleika blæ. Maturinn á staðnum var í stíl við sólarlagið eða óraunverulega góður. Prinsessan hélt að hún eldaði bara ágætan kjúkling en þess var einhvern veginn ennþá betri og meðlætið frábært, skammturinn að vísu of stór fyrir prinsessuna sem þó er átvagl. Prinsessan fékk meira að segja félagskap við "átið" því "vertynjan"snæddi með prinsessunni sem var sko góður félagsskapur og skemmtilegur svo ekki sé talað um lúksusinn að geta talað á ástkæra móðurmálinu. Hér talar prinsessan mest ensku, svolítla dönsku og reynir svo að bögglast við kaffipantanir og þakkir í búðum á spænsku. Ef Mango bar auglýsir lokun á næstunni verður það vegna ofsóknar prinsessunnar á staðinn .
Í dag er auglýst að íslendingar á svæðinu ætli að koma saman og horfa á handboltann í dag svo að prinsessan ætlar að drífa sig á staðinn og vonar að allavega útsendingin verði betri en í gegnum tölvuna og ekki sakar að heyra fagnaðarlæti í öðrum en Dolla .
Bless kæra dagbók og bestu kveðjur heim og njótið þess sem þið hafið .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
29.1.2010 | 11:53
Liðleikar!!
Kæra dagbók þá er prinsessan búin í "pilates" leikfimistíma, þetta voru mjög góðar æfingar og vel farið í öll atriði. Eitthvað hefur nú prinsessan tapað af sínum fyrri liðleika, kannski misminnir hana, axlirnar orðnar stirðari og ekki eins auðvelt að beygja sig saman. Allt gékk þó vel og prinsessan varð líklega ekki sjálfri sér né landi og þjóð til mikillar skammar en eitt er víst að í þessa tíma ætlar prinsessan að mæta vel og reglulega til að verða jafn liðug sjötug og konan í bleika dressinu .
Í gær dag fékk prinsessan sér langan göngutúr meðfram strandlengjunni fór svo og keypti kerti og endaði á kaffihúsi en klikkaði á því að biðja um kaffið í bolla eins og hún gerir vanalega og fékk auðvitað glas sem var lífsins ómögulegt að halda á sökum hita. Prinsessan reyndi að vefja servettu utan um glasið jafnvel fleiri sérvettum en ekkert dugði svo hún endaði á að láta kaffið aðeins kólna, því miður . Þarna var gott að sitjna í sólinni og fylgjast með fólki sem gékk hjá. Síðan dreif prinsessan sig heim og setist út á pall með tölvuna í fanginu til að fylgjast með handboltanum en netsambandið var afleitt svo að leikurinn hikstaðist áfram en prinsessan þrjóskaðist við og kláraði leikinn glöð í bragði. Svo er bara að sjá hvað gerist á sunnudaginn, alvega væri óskandi að hafa betra netsamband.
Eftir að prinsessan snæddi þennan líka góða heimaeldaða kjúkling kveikti hún á nýju kertunum og eftir að hafa reynt að fylgjst aðeins með fréttunum á spænsku skellti hún annari seríu af "Sex and The City" í spilararnn og horfði á fjóra þætti í röð. Svo skemmtilega vill til að prinsessan sá aldrei aðra seríu heima á sínum tíma þannig að þetta er hin besta afþreying, kannski að prinsessan versli sér bara popp fyrir kvöldið.
Bless kæra dagbók og vonandi gengur lífiði vel á Íslandi þrátt fyrir fjarveru prinsessunnar, hún sendir allavega bestu kveðjur og þúsund kossa .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.1.2010 | 16:52
Já já!!
Kæra dagbók hér verður gerð önnur tilraun að bulli í dag og vonandi kemst það inn .
Það er af prinsessunni að segja að hún brá sér í leikfimistíma í morgun, á íslensku héti tíminn eflaust magi rass og læri. Prinsessan hefur ekki stigið fæti inn í svona hóptíma í að minnsta kosti tvö ár þannig að hún var pínu kvíðin, skyldi hún halda sporinu, gera æfingarnar rétt eða bara halda tímann út . Prinsessunni létti þegar hún mætti á svæðið því að 80% þeirra sem voru að fara í tímann voru meira en tíu árum eldri en prinsessan og breskir í þokkabót. Þetta yrði nú ekkert mál fyrir unga og spræka prinsessuna sem hafði verið í Hess fyrir tæpum tveimur mánuðum og svitnað þar af áreynslu í tækjasalnum. Tíminn byrjaði á upphitun, tekin nokkur spor og prinsessan náði þeim alveg hún er svo klár svo var farið í að "jogga" hringi í salnum og á meðan kom kennslukonan fyrir miðum á gólfinu og ýmist pöllum, lóðum, stöngum eða sippuböndum fyrir, já já ekkert mál, þetta hafði nú prinsessan allt séð áður, ekkert nýtt fyrir hana eftir fjölda ára í Hress. Þá byrjaði ballið!!! tók ekki þarna við stöðvaþjálfun ala Sissó, armbeygur í ýmsum útgáfum, lyftingar og á milli var hópurinn ýmist látinn gera hnébeygur, framstig eða skokka mishratt nokkra hringi. Loksins stöðvaþjálfunin búin en ekki tók betra við þá voru það magaæfingar ala Ebba, kræst. Nú var prinsessan farin að biðja, í hljóði þó, að tíminn færi að vera búinn.Prinsessan var bænheyrð því nú tóku við teygjur og slöku. Prinsessan hraðaði sér til búningsklefans, hjartslátturinn orðinn eðlilegur eftir slökunina og prinsessan ánægð með eigin frammistöðu, með frammistöðu "breska, kvenkyns Sissó" og mjög góðar viðtökur hjá hópnum.Kvenkynsþátttakendurnir fræddu prinsessuna líka á því að þetta kæmi nú allt hjá henni þegar hún lýsti því yfir að tíminn hefði verið erfiðari en hún átti von á og bættu svo við "þetta er svoo gaman tímarnir verða erfiðari og erfiðari"!!
Allavega er prinsessan með það á hreynu að á morgun er um tvennt að ræða hjá henni annaðhvort verður hún komin með öörmjó læri eða að hún verði hreyfihömluð í ganglimunum . Hún skráði sig í "Pilates" tíma í fyrramálið svona til öryggis ef seinni möguleikinn verður uppi á borðinu, besta lækningin er nefnilega hreyfing og teygjur.
Bless kæra dagbók og auðvitað unnu strákarnir "okkar" Norðmenn, bestu kveðjur heim
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.1.2010 | 11:41
Sjónvarpið!
Kæra dagbók þá hefur prinsessan eytt meiri tíma yfir sjónvarpinu síðustu sólahringa en hollt getur talist. Spánverjar fjalla varla um annað en "vonda" veðrið, snjóinn og kuldann fyrir norðann og í fjöllunum. Áðan kom hins vegar "afar" áhugavert innslag um vaxmeðferðir, háreyðingu, það skondna var að þetta voru háreyðingar á karlmönnum. Karlagreyin lágu þarna á bekkjum og á þá var borin einhver "drulla" sem harðnaði og svo var rifið af, þeir áttu fullt í fangi með að sýna af sér karlmennsku og kveinka sér ekki en það lá í augum uppi að þeim fannst þetta ekki þægilegt. Prinsessunni þótti þetta svolítið skondið, sá fyrir sér sinn heittelskaða fara og láta" klæða sig úr lopapeysunni". Reyndar var hann alveg hárlaus stóran hluta síðasta árs og þrátt fyrir stórkostlegan sparnað í sturtusápuinnkaupum þá er prinsessan á því að mæla alls ekki með vaxmeðferð fyrir kærastann, hún kann betur við hann í "peysunni".
Prinsessan skellti sér í hana "Soffíu" í morgun en það er líkamsræktarstöðin sem varð fyrir valinu hjá prinsessunni, nú fer hún sem sé í "Soffíu" til að rækta sig. Ræktin var fín og vöðvar komu ágætlega undan afslöppun en þegar prinsessan ætlaði í sturtu komst hún að því að sturtan var ísköld þar sem rafmagnið hafði farið af stöðinni í nótt. Það hentar nú ekki prinsessunni á bauninni, ekki nennir hún að vera að gefa upp öndina á Spáni . Prinsessan sleppti því sturtunni og lagðist á bæn í bílnum um að vatnið væri komið á heima en það var tekið af í gær vegna vangreidds reiknings eigenda hússins. Þar sem prinsessan var fljót að kvarta undan vatnsleysi var brugðist hratt við og reikningurinn greiddur fyrir klukkan tvö í gær og spánska vatnsveitan lofaði að koma vatninu strax á aftur en þetta með strax hjá Spánverjum er ekki alveg það sama og strax hjá prinsessunni og núna sólahring síðar er ekki enn komið vatn þrátt fyrir að það sé búið að þrýsta á vatnsveituna mörgu sinnum. Prinsessan situr því og bíður eftir að komast í sturtu að vísu hitaði hún vatn úr flösku og þvoði sér svona að mestu svo lyktin er ekki kæfandi.
Prinsessan er svolítð andlaus í dag, ætli andinn hafi ekki fokið í rokinu í gær en hann kemur eflaust með sólinni sem er að brjótast fram.
Bless kæra dagbók og bestu kveðjur heim .
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (25.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar