Útrás í verki og skotveiði!

Kæra dagbók þá hafa útrásarvíkingarnir helgað sér enn stærra landsvæði í Hagaparken og alltaf minnkar pláss Victoríu FootinMouth. Hún getur nú bara sjálfri sér um kennt, ekki var hún úti að skokka í morgun að passa sitt, nei hins vegar var prinsessan á bauninni á skokkinu með víkingnum unga. Sumum lá eitthvað meira á en öðrum og hlupu fram og til baka, aftur á bak og áfram en það eru allt saman júdóæfingar, ekki prinsessu æfingar og þótti því ekki við hæfi hennar Blush. Prinsessan naut hins vegar þess að skoða landareignina og síðan var tekinn smá göngutúr í lokinn og bátar skoðaðir, bara að bíða eftir að stór landeigendum verði boðið í sjóferð Smile.

Í gær skruppum við þrjú í smá verslunarleiðangur, tengdamamma, Vigfús og prinsessan. Við fórum í Ecco skóbú, þar sem Vigfús var látinn máta sandala sem ég keypti svo á Eyjólf, tengdamömmu þótti ég köld að kaupa fyrstu skóna sem ég sá og máta þá á Vigfús og gefa svo Eyjólfi. Var virkilega ekki þörf á að skoða meira, nei prinsessur eru enn svolitlir skotveiði menn inn við hjartað því næst var farið í kvennnadeildina í H og M og þar skaut prinsessan kjól á tengdamömmuna og hann var keyptur, næst var það karladeildin og þar voru nærfötin skotin verst að Vigfús var farinn annað því gott mið náðist á frábærar köflóttar síðar stuttbuxur á hann Cool. Við vorum með vasareikni.

Í dag á að fara í smá göngutúr á landareigninni og sýna Eyjólfi og tengdaforeldrunum en ég og víkingurinn treystum þeim ekki til að ná að skoða hana alla í dag þar sem "fartin" á okkur var þvílík í morgun, hvað segja dönskukennarar við þvíFootinMouth?

Eyjólfur fékk frí af sjúkrahúsinu í dag svo við erum eins og í sumarbústaðaferð, afslappelsi og smá göngutúr Tounge, að vísu að þvo þvott en það eru tvær þvottavéla í stigaganginum svo það gengur hratt. Ámorgun förum við upp á sjúkrahús en það verður ekki langt stopp, smá inndæling, prufur og viðtal.

Bless kæra dagbók og hafðu það nú sem allra best.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Góðan og blessaðan daginn hlaupagikkur. Dönskukennarinn er hreinlega kjaftstopp yfir dugnaðinum í þér. Ég vaknaði ekki nógu snemma í gærmorgun til að hlaupa með "hópnum" en dreif mig ein af stað (Heimir var að mála og dúllast utanhúss- búinn að vera þvílíkur dugnaður í honum við  að mála, þrífa, slá og margt fleira og ég hef snuddast líka e-ð þarna úti) og fór í kringum Ástjörnina í blíðviðrinu en hélt mér nú ekki á skokkinu allan tímann, þóttist vera að njóta umhverfisins, stoppaði meira að segja til að tína  jurtir og skokkaði síðan með vöndinn (margir horfðu á mig með undrun) og þegar heim var komið plantaði ég þessu í steinabeðið og bíð nú spennt eftir því að sjá hvort þetta lifi eða deyi.

 Jæja ljúfurnar mínar, reynið nú að njóta dagsins, bestu kveðjur úr firðinum

Herdís Snorradóttir (IP-tala skráð) 2.7.2009 kl. 10:09

2 identicon

Gangi ykkur vel Rannveig mín.  Og ég stóla á að þú hættir að nískast þetta við hann tengdapabba þinn.

 Kær kveðja úr engri sól.

 Edda

Edda (IP-tala skráð) 2.7.2009 kl. 14:43

3 identicon

Sammála síðasta ræðumanni. KV. Sigurlaug og góða nótt farin að lúlla..

sigurlaug Jóhannsdóttir (IP-tala skráð) 3.7.2009 kl. 01:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Rannveig Vigfúsdóttir
Rannveig Vigfúsdóttir
Kennslulkona í leyfi frá störfum. Með mikla hreyfi þörf og ferðafíkill en sækist mest eftir hlýju loftslagi.

Færsluflokkar

Nýjustu myndir

  • Kærustuparið!
  • Taka tvö af Kærustuparinu!
  • Prinsessan!
  • Jón Leifs!
  • myndir student 055

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (21.11.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 2
  • Frá upphafi: 1053

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 2
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband